
Lík miðaldra konu sem saknað hafði verið á Kanaríeyjum undanfarnar vikur fannst um helgina, sundurlimað, á urðunarsvæði á eyjunni Fuerteventura.
Hin látna var 56 ára gömul aðflutt kona frá Belgíu, Katty O. að nafni.
22 ára sonur konunnar hefur verið handtekinn og er hann sterklega grunaður um að hafa myrt móður sína og bútað lík hennar sundur. Búist er við því að hann verði leiddur fyrir dómara á næstu dögum.
Líkamsleifar konurnar eru nú til rannsóknar hjá réttarmeinadeild lögreglunnar.
Katty bjó í bænum Corralejo, á norðausturströnd Fuerteventura. Málið hefur vakið mikinn óhug meðal íbúa en þar búa margir aðfluttir útlendingar. Haft er vini eftir Katty að hún hafi búið lengi í Corralejo og margir hafi kannast við hana þar sem hún var gjarnan á ferli í miðbænum.
Líkfundurinn átti sér stað síðasta föstudag, þann 8. maí, en lýst var eftir Kattý þann 4. maí. Hvorki vinir né dóttir hinnar látnu höfðu heyrt í henni síðan um mánaðamótin.