fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Pressan

Mannabein fundust á ruslahaug árið 1993 – Nú hefur lögregla loks borið kennsl á drenginn

Pressan
Mánudaginn 11. maí 2026 21:30

Mynd af Joseph frá árinu 1985.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Yfirvöld í Kaliforníu hafa loks borið kennsl á dreng eftir að bein hans fundust á ruslahaug árið 1993. Málið er þó enn hulin ráðgáta þar sem rannsóknarlögreglumenn vita hvorki hvernig hann lést né hvernig líkamsleifar hans enduðu á svæðinu.

Beinin fundust 30. ágúst árið 1993 við hreinsunarstörf á ruslahaugi í Camarillo í Ventura-sýslu í Kaliforníu. Réttarmeinafræðingar töldu á sínum tíma að beinin hefðu tilheyrt dreng á aldrinum 13 til 18 ára, en engar frekari líkamsleifar fundust og því reyndist ómögulegt að bera kennsl á hann.

Beinunum var komið fyrir í geymslu í von um að framfarir í DNA-rannsóknum myndu síðar gera auðkenningu mögulega.

Í mars á þessu ári sendi skrifstofa réttarmeinafræðings í Ventura-sýslu DNA-sýni til Othram-rannsóknarstofunnar, sem sérhæfir sig í að aðstoða lögregluyfirvöld við rannsókn gamalla og óupplýstra mála.

Rannsóknin leiddi í ljós samsvörun við nána ættingja og var síðar staðfest að drengurinn hét Joseph Patrick Reardon.

Joseph fæddist í Fresno í Kaliforníu 17. júní 1970. Samkvæmt opinberum gögnum var móðir hans sextán ára þegar hann fæddist og faðir hans nítján ára. Foreldrarnir höfðu gifst tveimur mánuðum áður en Joseph fæddist en skildu ári síðar.

Samkvæmt upplýsingum frá rannsóknarlögreglumanni hjá sýslumannsembættinu í Ventura virðist æska Josephs hafa einkennst af óstöðugleika. Árið 1985 bjó hann í borginni Oxnard á heimili fyrir börn og unglinga sem geta ekki búið hjá foreldrum sínum vegna erfiðra heimilisaðstæðna. Sama ár stundaði hann nám við Channel Islands-gagnfræðaskólann, en árið eftir var hann skráður í annan skóla, Hughson High School nærri Modesto.

Rannsakendur segja að Joseph hafi þá gengið undir nafninu Joe Gilbreth, eftirnafni fyrrverandi kærasta móður hans.

Yfirvöld hafa nú óskað eftir upplýsingum frá almenningi og hvatt alla sem kunna að hafa þekkt Joseph til að hafa samband við lögreglu. Enn er mörgum spurningum ósvarað í málinu, þar á meðal hvort hann hafi verið formlega tilkynntur týndur á sínum tíma.

Ekki liggur heldur fyrir hversu lengi líkamsleifar hans höfðu verið á svæðinu í Camarillo áður en þær fundust, en líklegt er að hann hafi látist nokkrum árum áður en þær fundust.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn
Pressan
Í gær

Svona er hægt að sjóða kartöflur hraðar

Svona er hægt að sjóða kartöflur hraðar
Pressan
Í gær

Sögulega stór víkingafjársjóður er kominn í leitirnar

Sögulega stór víkingafjársjóður er kominn í leitirnar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Höfuð fjölskyldunnar átti sér dökka hlið – Dökkir skuggar fortíðarinnar

Höfuð fjölskyldunnar átti sér dökka hlið – Dökkir skuggar fortíðarinnar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þanin(n) og þreytt(ur)? – Þessir ávextir geta hjálpað

Þanin(n) og þreytt(ur)? – Þessir ávextir geta hjálpað
Pressan
Fyrir 3 dögum

Óhugnanleg ný gögn úr dularfulla flugslysinu – Hvað gerðist í stjórnklefanum?

Óhugnanleg ný gögn úr dularfulla flugslysinu – Hvað gerðist í stjórnklefanum?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þeir sem sofa með svefnherbergisdyrnar lokaðar eiga þetta sameiginlegt

Þeir sem sofa með svefnherbergisdyrnar lokaðar eiga þetta sameiginlegt