
Hlutverk borgarfulltrúa er ekki að finna sér einatt ný og skemmtileg verkefni eins og að stækka selalaugina og leiðbeina með afmælisveislur. Borgin hefur ákveðnar grunnskyldur og á að einbeita sér að því að uppfylla þær með sóma áður en farið er að huga að gæluverkefnum. Sveitarstjórnarmál snúast fyrst og fremst um forgangsröðun. Hvernig á að verja sameiginlegum peningum íbúa. Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Eyjan Björg Magnúsdóttir - 4
Reykjavíkurborg er að vasast í hlutum sem eru ekki grunnskyldur sveitarfélaga. Það hefur verið nefnt þarna mannréttindaskrifstofan eða hvað þetta nú heitir. Það er nú bara eitt dæmi, það er ekkert endilega að það sé einhver stór póstur sem að myndi öllu breyta en það er svona tekið sem dæmi um það. Þú hefur lagt áherslu á þetta, að Reykjavík verði að koma sér aftur að því að einblína á hverjar eru grunnskyldurnar og framkvæma þær.
„Fara aftur í kjarnahlutverkið og kjarnaverkefnin. Hlutverk borgarfulltrúa er ekki að finna sér einhver skemmtileg ný verkefni að sinna eins og að stækka selalaugina eða búa til afmælisleiðbeiningar eða tala um það í þrjá klukkutíma hvað leikskólabörn mega borða mikið af kjöti. Landlæknir er bara búinn að gefa út upplýsingar um það. Borgin þarf ekkert að vera að röfla um það í marga klukkutíma. Svo kannski væri líka sniðugt, ef borgarstjórn er mjög umhugað um mat á leikskólum, að fjármagna þá almennilega matarinnkaup í skólana sem mér skilst að sé nú alveg víða pottur brotinn þar. Þannig að mér finnst þetta skipta rosalega miklu máli af því að hvað eru sveitarstjórnarmálin? Þetta er forgangsröðun númer eitt, tvö og þrjú. Í hvað eiga sameiginlegir peningar okkar að fara? Hvar er þörfin mest?
Við verðum einfaldlega bara, Reykjavík, og ég hef talað líka um það að samkvæmt lögum á borgin að gera ákveðna hluti og sveitarfélög um landið. Reykjavíkurborg á að byrja á því að gera það rosalega vel og svo auðvitað eru hlutir sem við erum að gera sem eru ekki lögbundnir eins og leikskólarnir og sundlaugarnar og eitthvað svona sem við viljum absolút halda áfram að gera, gerum það vel. En það er fullt af öðrum hlutum sem við þurfum ekkert að vera að vasast í. Mér finnst að við eigum bara að hætta því og nýta þá tímann betur í þessi grundvallar mál sem við erum hér að tala um.
Ég fer inn í pólitík út af mygluðum leikskóla og fæ áhuga á þessu í gegnum það. Meðan staðan er ekki betri úti í hverfunum þá finnst mér bara fráleitt að vera að verja endalausum tíma og peningum í einhver svona lúxusverkefni og svona næs verkefni meðan nauðsynjarnar eru ekki í lagi. Þá er þetta bara óboðleg stjórnun á tíma og peningum. Þannig að ég myndi vilja fara með dálítið svona praktísk gleraugu á það bara í hvað ertu að verja tíma þínum. Og taka það, veistu Ólafur, taka það dálítið alvarlega að þú ert að höndla með peninga annarra. Þú ert að höndla með peninga annarra og þar með ertu að höndla með tíma annarra og lífsviðurværi annarra. Þetta er rosalegt ábyrgðarhlutverk og þú átt ekki að hegða þér eins og áhættufjárfestir, þú átt að hegða þér eins og hagsýn húsmóðir og græja hverfin og hafa grunnþjónustuna í lagi.“
Já, ekki að vera eins og vogunarsjóður.
„Nei, ekki vera eins og vogunarsjóður. Förum aftur í grunninn og hlúum að grunninum. Það er þessi grundvallaratriði inni í hverfunum og þetta finnum við öll þegar við göngum um borgina, göngum um hverfið okkar. Þessu hefur ekki verið sinnt og það hefur ekki verið hlúð að grunninum og grundvallaratriðum.“
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.