

Eins og endranær um helgar voru næg verkefni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt. Þurftu lögreglumenn m.a. að handtaka mann sem reyndi að beita óvenjulegu vopni gegn þeim.
Þetta var meðal verkefna lögreglumanna á lögreglustöð 1 sem sér um löggæslu í miðborg, vesturbæ og austurbæ Reykjavíkur auk Seltjarnarness.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu á skemmtistað en þar voru dyraverðir með einstakling í tökum og þurftu aðstoð við að koma honum í burtu frá staðnum.
Óskað eftir aðstoð lögreglu á skemmtistað en þar voru dyraverðir með einstakling í tökum en sá hafði verið í slagsmálum inni á staðnum. Lögreglumenn fjarlægðu einstaklinginn og hélt hann sína leið eftir skýrslutöku.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu vegna líkamsárásar en ekki fylgir sögunni hvort þolandi árásarinnar slasaðist mikið.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu á bráðamóttöku Landspítalans vegna ölvaðs einstaklings sem var til vandræða. Reynt var að koma einstaklingnum heim til sín, en þegar þangað var komið bjó einstaklingurinn sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk og sveifla í átt að lögrelgumönnum. Var hann þá handtekinn og í kjölfarið færður á lögreglustöð þar sem hann var vistaður í fangaklefa þar til rennur af honum víman og hægt verður að tala við hann.
Hjá lögreglustöð 3 sem sér um Kópavog og Breiðholt var óskað eftir aðstoð lögreglu í verslunarmiðstöð vegna barna sem neituðu að yfirgefa verslunarmiðstöðina.
Tilkynnt var um eld í rulsageymslu fjölbýlishúss. Slökkvilið sá um að slökkva eldinn og loks var tilkynnt um líkamsárás en þess er ekki getið í dagbók lögreglu hvernig þolandana árásarinnar reiddi af.