fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Fréttir

Gróðrarstöðin Mörkin fær að lifa áfram að hluta

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 7. maí 2026 18:10

Gróðrarstöðin Mörk þarf ekki að víkja alfarið frá núverandi staðsetningu en mun starfa áfram í smækkaðri mynd. Mynd: Skjáskot/Já.is.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Náðst hefur samkomulag um að Gróðarstöðin Mörkin fá að halda starfsemi sinni áfram í Stjörnugróf í Reykjavík en starfsemin verður þó skert. Til stóð að Mörkin myndi víkja alfarið til að hægt væri að stækka athafnasvæði knattspyrnufélagsins Víkings.

Bændablaðið hefur nokkuð fjallað um málið en þar kom fram að Mörkin hafi starfað í Fossvogsdalnum í nær sex áratugi, eða frá árinu 1967. Leigusamningur fyrirtækisins um lóðina sem það stendur hafi fallið úr gildi árið 2016 og þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir hafi hann ekki verið framlengdur. Framtíð fyrirtækisins hafi verið í uppnámi vegna áforma um að stækka athafnasvæði knattspyrnufélagsins Víkings en Bændablaðið segir þau áform hafa byggt á samkomulagi frá 2008 sem eigendur Markar hafi sagt að gert hefði verið án samráðs við þá.

Í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að borgarráð hafo samþykkt annars vegar samkomulag við Gróðrarstöðina Mörk sem tryggi áframhaldandi starfsemi hennar í Stjörnugróf 18 að hluta og hins vegar við Knattspyrnufélagið Víking um langtímasýn fyrir aðstöðu félagsins í Stjörnugróf og í Safamýri. Jafnframt færist eignarhald núverandi íþróttamannvirkja Víkings við Traðarland 1 til Reykjavíkurborgar sem taki þar með að sér viðhald og frekari uppbyggingu.

Þá hafi borgarráð einnig samþykkt samkomulag við Knattspyrnufélagið Val um að eignarhald núverandi íþróttamannvirkja félagsins færist yfir til Reykjavíkurborgar með sama hætti.

Forsagan

Í tilkynningunni er forsaga málsins rekin.

Borgarráð samþykkti í júlí 2008 tillögu þáverandi borgarstjóra um fyrirheit á stækkun athafnasvæðis Knattspyrnufélagsins Víkings þegar gildandi lóðarleigusamningur við Gróðrarstöðina Mörk rynni út árið 2016. Fyrirheit borgarráðs var skuldbindandi fyrir Reykjavíkurborg og veitti KnattspyrnufélaginuVíkingi forgang til að minnsta kosti hluta landsvæðis Stjörnugrófar að uppfylltum skilyrðum. Samkomulag Reykjavíkurborgar og Gróðrarstöðvarinnar Markar felur í sér afnotasamning fyrirtækisins til 2050 en um leið þarf Gróðrarstöðin Mörk að skila hluta af lóðinni í tvennu lagi, fyrst í lok þessa árs og svo aftur 2032.

Segir í tillkynningunni að Gróðrarstöðin Mörk haldi um það bil helmingi lóðarinnar eftir þann tíma til 2050 sem tryggi áframhaldandi starfsemi fyrirtækisins.

Í tilkynningunni er haft eftir Heiðu Björg Hilmisdóttur borgarstjóra:

„Þetta er dæmi um lausn sem horfir bæði til framtíðaruppbyggingar íþróttastarfs og þess að verja rótgróin fyrirtæki og störf í borginni. Við erum að skapa skýrari framtíðarsýn fyrir Safamýrina og Traðarlandið, þar sem uppbygging íþrótta- og skólasamfélags fær að vaxa áfram með hverfinu.“

Ánægð en ekki fullkomlega

Með tilkynningunni fylgir einnig tilvitnun í Guðmundur Vernharðsson og Sigríður Helga Sigurðardóttir, eigendur Gróðrarstöðvarinnar Markar sem eru sög fagna því að loks hafi náðst niðurstaða í málinu  og að aukinn fyrirsjáanleiki sé nú kominn í stöðuna:

„Þó að niðurstaðan sé ekki sú sem við vonuðumst eftir, teljum við mikilvægt að þessu langvarandi ferli sé lokið. Ljóst er að um er að ræða verulega blóðtöku fyrir fyrirtækið. Skerðing verður á framleiðslugetu og húsnæði, auk þess sem umtalsverður kostnaður fellur til. Þar má meðal annars nefna þann kostnað sem fylgir því að færa um 200 fermetra húsnæði innan þeirrar lóðar sem við höldum eftir. Við viljum koma á framfæri þökkum til núverandi meirihluta fyrir að hafa tekið af skarið og höggvið á þennan hnút. Jafnframt erum við þakklát borgarritara og borgarstjóra fyrir stuðninginn og fyrir að hafa staðið með okkur í gegnum þetta krefjandi ferli. Við ætlum að horfa fram á við með bjartsýni og leggja áherslu á uppbyggingu til framtíðar. Um leið ætlum við að hætta að velta fyrir okkur hvernig borgin og Víkingur hyggjast nýta þetta svæði og beina kröftum okkar að eigin rekstri og næstu skrefum.“

Víkingur og Valur

Í tilkynningunni segir einnig að Borgarráð hafi samþykkt samkomulag um eignarhald, uppbyggingu og viðhald íþróttamannvirkja Víkings við Traðarland til framtíðar og uppbyggingu félagsins í Safamýri. Langtímasýn fyrir stækkun á athafnasvæði Víkings í Stjörnugróf 18 og tímalínur breytinga sé rauði þráðurinn í samkomulaginu ásamt uppbyggingu í Safamýri með knatthúsi og frekari innviðauppbyggingu í þágu íþrótta- og/eða skólastarfs í hverfinu. Þá færist eignarhald allra íþróttamannvirkja í Víkings til Reykjavíkurborgar eigi síðar en í lok árs 2026.  Farið verði í aðkallandi viðhald innan og utan dyra ásamt byggingu 3. hæðar ofan á félagsheimili fyrir starfsemi félagsins sem nýttist allri starfsemi félagsins ásamt annarri uppbyggingu.

Björn Einarsson, formaður Knattspyrnufélagsins Víkings, er sagður fagna því að samningum hafi verið náð við Reykjavíkurborg um framtíðaruppbyggingu á athafnasvæðum félagsins og að málið sé loks til lykta leitt:

„Samningurinn er ítarlegur og tekur fyrst og fremst mið af þörfum félagsins í heild og þörfum annarra hagsmunaaðila innan hverfa Víkings. Sú uppbygging sem kveðið er á um í samningnum er til marks um skýran metnað Víkings og borgarinnar til áframhaldandi framfara, öflugrar þróunar og árangurs á öllum sviðum félagsins til næstu ára og áratuga. Félagið færir miklar þakkir til samningateymisins og Reykjavíkurborgar fyrir samstarfið.“

Loks er í tilkynningunni vikið að Knattspyrnufélaginu Val. Samið hafi verið um yfirfærslu eignarhalds íþróttamannvirkja Vals til Reykjavíkurborgar. Eldra samkomulag Vals, Hlíðarenda og Reykjavíkurborgar sem samþykkt var í borgarráði 14. desember 2023 liggi til grundvallar samningnum sem var samþykktur í dag sem og samningsmarkmið Reykjavíkurborgar vegna yfirfærslu eignarhalds á mannvirkjum hverfisíþróttafélaga sem samþykkt voru í borgarráði 26. mars 2026. Með samkomulaginu hafi Reykjavíkurborg efnt að fullu ákvörðun borgarráðs frá 2023 að vinna að endurskoðun á eignarhaldi íþróttamannvirkja að Hlíðarenda með það að markmiði að Reykjavíkurborg taki yfir rekstur þeirra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ákærður fyrir hótanir gegn unnustu – „Ég ræðst beint á það sem þér þykir vænst um“

Ákærður fyrir hótanir gegn unnustu – „Ég ræðst beint á það sem þér þykir vænst um“
Fréttir
Í gær

Lögreglan birtir gervigreindarmynd til að auglýsa skotvopnaeftirlit – Loka fyrir athugasemdir

Lögreglan birtir gervigreindarmynd til að auglýsa skotvopnaeftirlit – Loka fyrir athugasemdir
Fréttir
Í gær

Skipulagsbreytingar formanns Miðflokksins og gervigreindar – „Alveg hissa að formaðurinn hafi ekki búið til fleiri bílastæði“

Skipulagsbreytingar formanns Miðflokksins og gervigreindar – „Alveg hissa að formaðurinn hafi ekki búið til fleiri bílastæði“
Fréttir
Í gær

Kosmos er nýtt lággjaldafyrirtæki á fjarskiptamarkaði

Kosmos er nýtt lággjaldafyrirtæki á fjarskiptamarkaði