

Söngkonan og lagahöfundurinn Emilíana Torrini er Bæjarlistamaður Kópavogs árið 2026. Elísabet Sveinsdóttir formaður menningar- og mannlífsnefndar tilkynnti valið við hátíðlega athöfn í Salnum í gær. Bæjarlistamaður Kópavogs er valinn árlega af nefndinni og er markmiðið með valinu að varpa ljósi á fjölbreytt og öflugt listalíf í bænum og heiðra listamenn sem hafa auðgað menningarlíf Kópavogs.
„Það er mér mikill heiður að hljóta þessa viðurkenningu og fá að bera titilinn Bæjarlistamaður Kópavogs. Ég er þakklát fyrir traustið og hlýjuna sem mér hefur verið sýnd og hlakka til að fá að leggja mitt af mörkum til lista- og menningarlífsins í bænum,“
segir Emilíana, sem er fædd og uppalin í Kópavogi og hefur búið þar með hléum. Ung hóf hún tónlistarferil sinn í Skólakór Kársness undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Emilíana hefur gefið út fimm sólóplötur, sú nýjasta Miss Flower kom út árið 2024, en hinar eru Love in the Time of Science, Fisherman’s Woman, Me and Armini og Tookah. Emilíana er hvað þekktust fyrir smáskífu sína Jungle Drum frá árinu 2009, sem naut mikillar velgengni á vinsældalistum víða um heim.