
Árni Logi Sigurbjörnsson, meindýraeyðir í Víðihlíð í Öxarfirði, hefur verið ákærður fyrir brot gegn lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Ákæruna fær Árni fyrir að stunda starf sitt við meindýraeyðingu, sem hann hefur starfað við allt frá árinu 1979, en Árni er ákærður fyrir að hafa veitt minka í búr, svokallaðar lífgildrur.
Í ákæru málsins segir:
„…stundað veiðar á villtum dýrum með lífgildrum sem hvorki höfðu hlotið samþykki Umhverfisstofnunar né hafi ákærði sótt um undanþágu til notkunar lífgildranna, en ákærði notaði þessi veiðitæki til að veiða a.m.k. fimm minka við skrúðgarðinn á Húsavík og Kaldbakstjarnir sunnan Húsavíkur og síðan aflífað dýrin.“
Árni segir í viðtali við DV að þetta sé furðulegt mál enda hafi hann flutt inn þessar gildrur í átatugi. Lagabreyting hafi verið gerð árið 1994 þar sem sækja þarf um undanþágu til að nota gildrurnar. Fáir viti hins vegar af því.
„Það vissi enginn að þetta væri leyfisskylt og það voru bara líffræðingar hjá háskólanum sem notuðu þetta til að fanga minka til rannsóknar. Ég hef stundað minka- og refaveiðar frá því um fermingu og verið notaður til þess af sveitarfélögum um allt land. Ég hef margsinnis fangað minka í þessar gildrur og líka ketti og kanínur. Maður stýrir því ekki hvaða dýr lenda í gildrunni. Það hefur aldrei verið gerð athugasemd við þetta og þessar gildrur verið notaðar fyrir sveitarfélög um allt land. Þegar lögmaðurinn minn spurði eftir því hverjir hafa sótt um þessa undanþágu kom í ljós að enginn hafði sótt um vegna þess að það vissi enginn að þetta væri leyfisskylt.“
Árni Logi bendir á að gildrurnar skaði ekki dýrin:
„Þau lokast inni en þetta drepur þau ekki. Þau stíga bara á plötu í botninum sem virkjar lokunina og þau læsast bara inni.“ Árni sleppir síðan köttum og kanínum sem rata í búrin en drepur minkana.
Hann segir að yfirvöld séu með öllum ráðum að koma í veg fyrir hann geti stundað starf sitt. „Þetta er einelti. Það er bara svoleiðis. Ég óskaði eftir því í fyrirtökunni að þau Eyþór Þorbergsson og Agnes Björg Blöndal, saksóknarar hjá embætti lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, yrðu úrskurðuð vanhæf í málinu vegna fyrri afskipta sinna af mínum málum,“ segir Árni Logi.
„Þetta er hýenubæli þarna í Þórunnarstræti,“ bætir hann við, hvassyrtur, og vísar til embættis lögreglustjóra sem er staðsett í Þórunnarstræti á Akureyri.
Árni Logi er hér að vísa til fyrri samskipta sinna við yfirvöld:
Í febrúar árið 2020 mátti hann þola handtöku og ítarlega húsleit í kjölfar þess að móðir lögreglumanns á Húsavík kærði hann fyrir margvísleg hrottaleg kynferðisbrot. Áskanirnar reyndust tilhæfulausar, raunar voru Árni Logi og konan stödd hvort í sínum landshlutanum þegar brotin höfðu átt að eiga sér stað.
Við húsleitina fundust hins vegar skotvopn sem Árni Logi taldist ekki hafa gengið frá með lögmætum hætti, það er í læsta byssuskápa. Var hann því ákærður og sakfelldur fyrir vopnalagabrot. Hann missti skotvopnaleyfi sitt og hefur ekki fengið það síðan. Sem nærri má geta er það mjög til baga í starfi meindýraeyðis að hafa ekki skotvopnaleyfi, en nú virðist sem Árni Logi geti ekki heldur fangað dýr í gildrur, miðað við þetta mál.
Árni Logi kærði húsleitina sem gerð var hjá honum árið 2020. Lagði hann fram þriggja milljóna bótakröfu vegna handtöku, fangelsunar, húsleitar, haldlagningar á ökutæki og persónulegum munum. Málið var dómtekið í Héraðsdómi Reykjavíkur haustið 2024 og bauð ríkið dómsátt. Voru Árna Loga greiddar 900 þúsund krónur í bætur.
Aðalmeðferð í málinu gegn Árna Loga verður við Héraðsdóm Norðurlands eystra á morgun, fimmtudaginn 7. maí, kl. 13.