fbpx
Mánudagur 18.maí 2026
433Sport

Skora á félög landsins – „Besta forvörnin“

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 6. maí 2026 17:00

Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri KSÍ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á fundi stjórnar KSÍ þann 16. apríl var lögð fram ályktun frá Ungmennaþingi KSÍ sem haldið var 15. mars síðastliðinn.

Þar er skorað á félögin í landinu að bjóða upp á æfingar fyrir alla eftir 2. flokk, líka þá sem ætla sér ekki endilega að ná langt á sviði knattspyrnunnar.

Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum að fela framkvæmdastjóra að koma henni á framfæri við aðildarfélög og hefur það verið gert.

Ályktun frá Ungmennaþingi KSÍ sem fram fór 15. mars 2026
Til þess að tryggja aðgengi að fótbolta eftir 2. flokk skorar Ungmennaþing KSÍ á félögin að bjóða upp á æfingar fyrir alla, bæði fyrir þá iðkendur sem stefna að því að spila með meistaraflokki félagsins og fyrir þá sem vilja æfa fótbolta en stefna ekki hærra. Að fá að tilheyra liði og að geta sótt æfingu í íþróttafélagi hefur sýnt sig að sé besta forvörnin.

Samþykkt samhljóða á Ungmennaþingi KSÍ sem haldið var 15. mars 2026

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Árni Tómas er látinn
433Sport
Í gær

Hugarfarið hafi ekki virkað nógu gott – „Vanmat er eitur“

Hugarfarið hafi ekki virkað nógu gott – „Vanmat er eitur“
433Sport
Í gær

Hefði áhyggjur af þessu sem KR-ingur

Hefði áhyggjur af þessu sem KR-ingur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Guardiola með áhugaverð svör þegar hann var spurður út í tímabilið

Guardiola með áhugaverð svör þegar hann var spurður út í tímabilið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Goðsögnin leggur skóna á hilluna

Goðsögnin leggur skóna á hilluna