fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fréttir

Segir kjósendum í sveitarstjórnarkosningunum mismunað

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 5. maí 2026 17:30

Á höfuðborgarsvæðinu er kosið utan kjörfundar hjá sýslumanni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árni Snævarr rithöfundur og fyrrum fréttamaður vill meina að þeim kjósendum sem muni kjósa utan kjörfundar í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fara 16. maí sé mismunað og njóti ekki sömu möguleika og þeir sem kjósi á kjördag.

Árni býr og starfar í Brussel, sem upplýsingafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum, og er búinn að kjósa utan kjörfundar. Hann gerir athugasemdir við hversu takmarkaðri möguleika kjósendur sem kjósa utan kjörfundar, en þeir sem kjósa á kjördag, hafa til að gera breytingar á röð frambjóðenda á þeim framboðslista sem þeir ætla að kjósa. Árni segir svo frá á Facebook:

„Búinn að kjósa í borgarstjórnarkosningunum utan kjörstaða. Ég mætti í sendiráð harðákveðinn í að gera miklar breytingar á þeim lista sem ég ætlaði að kjósa. En viti menn kjósi maður utan kjörstaða fær maður ekki lista í hendurnar. Og það sem meira er kjósandi yrði að skrifa upp allan listann (eftir minni kannski með nýjum númerum. Til að strika út þarf maður að skrifa nafn viðkomandi og strika yfir. Er ekki svolítið undarlegt að það sé minna lýðræði í utankjörstaðaatkvæðagreiðslu en á kjörstað? Má mismuna kjósendum? Þetta breytir ekki gangi himintunglanna en maður hefur nú tuðað af minna tilefni!!“

Í athugasemd er Árni hvattur, þó í meira gamni en alvöru, til að kæra kosningarnar en því svarar hann:

„Legg það nú ekki á fólk.“

Ljóst er þó að skipulag utankjörfundaratkvæðagreiðslu hér á landi hefur löngum verið með þessum hætti. Það hefur verið rökstutt meðal annars með því að hún hefjist áður en framboðsfrestur rennur út og því séu ekki allir framboðslistar tiltækir. Velta má hins vegar fyrir sér hvort það sé ekki mikið til í þeim orðum Árna að þetta geri það að verkum að ekki sé fullt jafnræði með þeim sem kjósa á kjördag og þeim sem gera það utan kjörfundar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ólétta kostaði starfsmann á leikskóla vinnuna

Ólétta kostaði starfsmann á leikskóla vinnuna
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Eins og atriði í hryllingsmynd – Sáu óðan mann með hníf í Ring myndavélinni

Eins og atriði í hryllingsmynd – Sáu óðan mann með hníf í Ring myndavélinni
Fréttir
Í gær

Ásdís fær liðsauka frá vinstri við að verjast Kristrúnu – „Hvernig færðu það út að ég sé að verja íhaldið“

Ásdís fær liðsauka frá vinstri við að verjast Kristrúnu – „Hvernig færðu það út að ég sé að verja íhaldið“
Fréttir
Í gær

Sendu Kjartani „risa ljós“

Sendu Kjartani „risa ljós“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Minnist Ingu eiginkonu sinnar sem lést í kajakslysi á miðvikudag: „Fallega, góða mamma litlu drengjanna. Það kemur ekkert í staðinn fyrir hana“

Minnist Ingu eiginkonu sinnar sem lést í kajakslysi á miðvikudag: „Fallega, góða mamma litlu drengjanna. Það kemur ekkert í staðinn fyrir hana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hagar styrkja níu frumkvöðlaverkefni í matvælaframleiðslu

Hagar styrkja níu frumkvöðlaverkefni í matvælaframleiðslu