fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Fréttir

Íslenskur maður ráðalaus vegna þjófagengis í næsta húsi – „Löggan hefur komið og talað við þau í nokkur skipti en svo gerist ekkert“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 5. maí 2026 12:00

Maðurinn er búinn að fá nóg af hinum fingralöngu nágrönnum sínum. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenskur maður er ráðalaus vegna þjófagengis sem býr í næsta húsi við hann. Hann segist ekki vilja gera sig að skotmarki en ruslageymslan fyllist af stolnum ferðatöskum.

„Nú er ég með spes vandamál. Það er þjófagengi sem býr í næsta húsið við mig og er reglulega að stunda bæði vasaþjófnað á ferðamannastöðum og ræna töskum túrista,“ segir maðurinn í færslu á samfélagsmiðlinum Reddit.

Þýfi og bílar eins og hráviði út um allt

Segir hann að bílnúmerið þeirra sé þekkt á Geysissvæðinu þau hafi stundað vasaþjófnað.

Veldur þetta líka ýmsum vandamálum. Meðal annars að gengið er sífellt að fylla ruslageymsluna af stolnum ferðatöskum og föstum frá ferðamönnum sem svo fýkur út um allt.

Fólkið er með þrjá bíla sem standa bara á svæðinu. Þau hafi verið beðin um að færa þá en segjast hafa týnt lyklunum af öllum þremur. Bílarnir eru á númerum þannig að þeir eru ekki dregnir í burtu.

„Löggan hefur komið og talað við þau í nokkur skipti en svo gerist ekkert,“ segir hann og spyr hvað sé hægt að gera þegar þetta sé komið á þetta stig og hvað eigi að gera við allt þetta þýfi sem þjófarnir skilja eftir sig.

„Kannski gott að nefna að ég vill alls ekki gera mig að einhverju skotmarki fyrir þau,“ segir hann. „Á maður bara að safna myndum af öllu þýfinu sem safnast upp?“

Hafa samband við fjölmiðla og leigjanda

Eru ýmsir möguleikar nefndir í athugasemdum við færslu mannsins. Meðal annars er það nefnt að halda áfram að pressa á lögregluna að gera eitthvað í málinu, að hafa samband við fjölmiðla til þess að varpa ljósi á vandann eða leigusala fólksins.

Sjá einnig:

Vasaþjófaplága herjar á Ísland – „Skipulögð brotastarfsemi“

„Ef þau eru leigjendur, hafa samband við eiganda íbúðarinnar. Þetta er líklegast brot á leigusamningi. Ekki leyfilegt að stunda ólöglega starfsemi í húsinu,“ segir einn.

Myndavélar hafi fælingarmátt

Þá geri eftirlit mikið, til að mynda öryggismyndavélar sem hafi mikinn fælingarmátt.

„Við vorum með svipað vandamál, búum beint á móti leigueiningarhúsi sem er leigt af sveitarfélaginu. Þar var þjófagengi sem mikið til geymdi þýfi úr hverfinu á bílaplaninu hjá sér,“ segir einn. „Þau reyndu að brjótast inn í geymslurnar hjá okkur vikulega, stundum oft í viku. Við settum upp myndavélar og þetta hætti algjörlega.“

„Ég lenti í því að fá svona gengi í leiguherbergi fyrir neðan mig, en var svo lánssamur að þeir reyktu gras inni og leigusalinn var með löggunni í því að losna við þá. Þeir voru teknir með þýfi úr Elko, en held ég ekki sendir beint úr landi,“ segir annar. „Það eina sem hefði hjálpað betur var að taka niður bílnúmer á bílunum sem þeir voru á til þess að ná í skottið á strúkturnum sem var að koma þessum gaurum inn til landsins á ferðamanna-visa.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Sorpþjónusta hefur hækkað um 104% að raun­virði frá 2008 – Reykvíkingar borga mest og eru óánægðastir með sorphirðu

Sorpþjónusta hefur hækkað um 104% að raun­virði frá 2008 – Reykvíkingar borga mest og eru óánægðastir með sorphirðu
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Þröstur er með nýrnabilun á lokastigi – Óskar eftir aðstoð til að halda reisn og sjálfstæði „síðustu ár ævi minnar“

Þröstur er með nýrnabilun á lokastigi – Óskar eftir aðstoð til að halda reisn og sjálfstæði „síðustu ár ævi minnar“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Edition-málið – Móðirin sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana svo í hjartað

Edition-málið – Móðirin sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana svo í hjartað
Fréttir
Í gær

Ákærður fyrir hótanir gegn unnustu – „Ég ræðst beint á það sem þér þykir vænst um“

Ákærður fyrir hótanir gegn unnustu – „Ég ræðst beint á það sem þér þykir vænst um“
Fréttir
Í gær

Helga varð fyrir vonbrigðum með Ásdísi – „Nýta atkvæðið til að fella meirihlutann og koma í veg fyrir að bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins haldi áfram“

Helga varð fyrir vonbrigðum með Ásdísi – „Nýta atkvæðið til að fella meirihlutann og koma í veg fyrir að bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins haldi áfram“
Fréttir
Í gær

Kona sem sofnaði undir stýri á Suðurlandsvegi og olli alvarlegu slysi dregin fyrir dóm

Kona sem sofnaði undir stýri á Suðurlandsvegi og olli alvarlegu slysi dregin fyrir dóm