fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fréttir

Nefnir þrjú dæmi um „þráláta þrjóskuheimsku“ Íslendinga – „Með dassi af sérhagsmunum og popúlískri pólitískri froðu“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 5. maí 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, gerir þrjósku Íslendinga að umtalsefni í löngum pistli sem hann birti á Facebook. Þrjóska þessi geri það að verkum að stjórnvöld láti sér ekki segjast fyrr en seint og síðar meir en skýr dæmi um þetta séu göngustígur á Klambratúni, Landeyjarhöfn og stefna stjórnvalda í fíkniefnamálum.

Þrjóskuðust við í hálfa öld

Göngustígurinn um Klambratún var ekki lagður í beina línu heldur myndaði eins konar L. Þessu hafði Kristinn furðað sig á þegar hann var að alast upp í Hlíðunum en fékk svo skýringu eftir að hann varð fullorðinn. Stígnum var ætlað að leiða fólk meðferð sérstökum blindragarði þar sem blindir og sjónskertir áttu að geta notið þess að hafa fjölskrúðugar og ilmandi jurtir í snertihæð. Þessi blindragarður varð aldrei að veruleika og eini vitnisburðurinn um áformin var undarleg lega stígsins. Það sé eðli manneskjunnar sem og sauðfjár og vatns að leita alltaf í stystu leið. Lega stígsins gerði að verkum að fólk óð frekar yfir gresið í stað þess að taka sveigjuna á stígnum.

„Skipti engu þó að tímasparnaðurinn væri óverulegur. Náttúran vill hafa sinn gang. Af þessu spratt endalaust ófremdarástand því grasið þoldi ekki þessa umferð og breyttist í svað sem fór bara stækkandi þegar menn forðuðust forina með því einu að fara útaf henni og búa þar til nýja for.“

Frekar en að játa sig sigruð þrjóskuðust yfirvöld við og sáðu í svörðinn eða tyrfðu hann. En áfram stytti fólkið sér leið með sama hætti.

„Þessi slagur stóð í áratugi. Fyrir nokkrum árum varð breyting á þegar einhver hugvitsmaður hjá Borginni fékk þá snjöllu hugmynd að færa stíginn í átt að þeirri leið sem fólkið vildi fara. En það tók heil 50 ár að komast að þeirri niðurstöðu og í hálfa öld var streist á móti mannseðlinu með ærnum tilkostnaði og fyrirhöfn. Undirliggjandi þar var einhver blanda af séríslenskri þrjósku og heimsku. Og hún birtist víða.“

Sandaustur leikskólabarna í sandkössum

Annað dæmi sé svo Landeyjarhöfn en fyrir um 20 árum hafi einhver fengið þá „snilldarhugmynd“ að byggja þessa höfn þrátt fyrir varnarorð.

„Úr varð framkæmd sem best er lýst sem sjógryfju sem hefur þann megintilgang að safna í sig sandi. Til hliðar við þessa sandsöfnun hefur verið reynt að nota gryfjuna til hafnaraðstöðu fyrir Vestmannaeyjaferjuna en sú starfsemi víkur oftast fyrir hinni. Það er allt á huldu með tilgang þess að safna sandi í þessa sjógryfju enda þörfin óljós og gnótt af sandi allt um kring sem sækja má með léttari hætti og minni tilkostnaði. Meginstarfsemi í kringum þetta ævintýri hefur líka verið að dæla sandi upp úr þessum potti til þess eins að rýma til fyrir nýjum sandi. Þetta hefur allt kostað mikla fjármuni, hundruð milljóna á ári hverju og einhvers staðar hef ég séð töluna átta milljarðar sem heildarkostnað við þessa sandsöfnun ríkisins. Endrum og sinnum ber á röddum um að hætta þessari vitleysu sem þjónar minni tilgangi en sandaustur leikskólabarna í sandkössum. Lítið virðist hlustað á þær raddir að best sé að hætta þessari tilraun.

Þar kemur til sögunnar hin þráláta þrjóskuheimska sem mun væntanlega tryggja það að milljörðum verði varið í viðbót í þetta sandkassaverkefni hins opinbera.“

Stríð sem tapaðist daginn sem það hófst

Kristinn tekur fram að þessi þráláta þrjóskuheimska sé ekki einskorðuð við opinberar framkvæmdir. Hún birtist í ýmsum öðrum opinberum stefnum, svo sem í stefnu yfirvalda í fíkniefnamálum, en stríðið gegn fíkniefnum var tapað daginn sem það hófst. Á sumum stöðum í heiminum er farið að ræða nýja nálgun en á Íslandi virðist þrjóskan enn ríkja þar sem yfirvöld hafa ákveðið að vígvæða lögregluna frekar en að afglæpavæða fíkniefni.

„Það birtist í gengisbólgnandi refsingum og þeirri vissu að best sé að bregðast við heilbrigðisvandamáli með því að stinga sjúklingum í fangelsi. Þrjóskuheimskan með dassi af sérhagsmunum og popúlískri pólitískri froðu, tryggir að ekki er hvikað frá þeirri braut sem 100% vitund er um að virkar ekki og hefur aldrei virkað. Að þessu leyti er mannskepnan síðri málleysingjum því það er yfirleitt svo að hestur þarf ekki nema að fara einu sinni utan í rafmagnsgirðingu til þess að halda sig í fjarlægð frá henni en maðurinn virðist þurfa að grípa í hana aftur og aftur og fá alltaf sömu niðurstöðu, straum í kroppinn en þrjóskuheimskan aftrar honum frá því að gefast upp.“

Skaðinn af fíkniefnastefnunni sé meiri heldur en forin á Klambratúni og sandurinn í Landeyjahöfn. Skaðinn er ekki bara fjárhagslegur heldur felur í sér manntjón.

„Það líður varla sú vika að ekki er verið að bera til grafar fólk sem deyr af völdum stefnunnar. Oft er þetta ungt fólk. Það er ekki til sú stórfjölskylda á Íslandi sem hefur verið ósnert af erfiðleikum, sorg og sárum missi vegna þess að hér er verið að fylgja stefnu sem virkar ekki. Ég er ekkert of vongóður um það takist að fara í róttæka stefnubreytingu. Vonandi gerist það en fram að því skulum við að minnsta kosti horfast í augu við það, að hér er fólk að deyja. Vegna þrjósku og heimsku.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Ólétta kostaði starfsmann á leikskóla vinnuna

Ólétta kostaði starfsmann á leikskóla vinnuna
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Eins og atriði í hryllingsmynd – Sáu óðan mann með hníf í Ring myndavélinni

Eins og atriði í hryllingsmynd – Sáu óðan mann með hníf í Ring myndavélinni
Fréttir
Í gær

Ásdís fær liðsauka frá vinstri við að verjast Kristrúnu – „Hvernig færðu það út að ég sé að verja íhaldið“

Ásdís fær liðsauka frá vinstri við að verjast Kristrúnu – „Hvernig færðu það út að ég sé að verja íhaldið“
Fréttir
Í gær

Sendu Kjartani „risa ljós“

Sendu Kjartani „risa ljós“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Minnist Ingu eiginkonu sinnar sem lést í kajakslysi á miðvikudag: „Fallega, góða mamma litlu drengjanna. Það kemur ekkert í staðinn fyrir hana“

Minnist Ingu eiginkonu sinnar sem lést í kajakslysi á miðvikudag: „Fallega, góða mamma litlu drengjanna. Það kemur ekkert í staðinn fyrir hana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hagar styrkja níu frumkvöðlaverkefni í matvælaframleiðslu

Hagar styrkja níu frumkvöðlaverkefni í matvælaframleiðslu