
Þetta kom fram þegar Jared Isaacman, forstjóri bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA, kom fyrir bandaríska þingnefnd nýlega. Sagðist hann vera talsmaður þess að Plútó verði gerður að plánetu á nýjan leik.
Vísindaritið Nature segir að NASA vinni nú að mati á hvort gera eigi Plútó aftur að plánetu og sé verið að fara yfir ýmis gögn varðandi málið.
Þarf að uppfylla þrjár kröfur
Til að hægt sé að kalla himintungl plánetu þarf það að uppfylla þrjú skilyrði.
Fyrir það fyrsta þarf það að vera á braut um sólina.
Annað skilyrðið er að það þarf að vera nægilega stórt til að eigin þyngd þess hafi gert það næstum hnattlaga.
Þriðja skilyrðið er að það þarf að vera ráðandi afl á braut sinni og að hafa rutt öðrum himintunglum úr vegi á brautinni.
Þriðja skilyrðið uppfyllir Plútó ekki því hann er í Kuiperbeltinu, sem er svæði með mörgum öðrum himintunglum. Hann hefur því ekki getað rutt þeim af braut sinni og það var ástæðan fyrir að hann var lækkaður í tign 2006 og gerður að dvergplánetu.