
Dagbladet skýrir frá þessu og segir að þarna hafi fundist mörg þúsund peningar frá víkingatímanum. Þeir eru frá Danmörku, Noregi og Englandi.
„Það leið svolítill tími þar við áttuðum okkur á hversu stórt þetta var. Þessi fundur er algjörlega klikkaður,“ sagði May-Tove Smitseth, fornleifafræðingur, í samtali við Dagbladet.
Nú hafa rúmlega 2.200 peningar fundist en Smitseth sagðist reikna með að þeir verði orðnir rúmlega 3.000 þegar búið verður að grafa allt svæðið upp.
Það mun þá þýða að peningarnir, sem eru líkleg fá því um 1040, tryggi sér sess í sögubókum því mjög sjaldgæft er að stærri fjársjóðir finnist í Noregi.