

Skólahreysti og Krónan hafa gert með sér samstarfssamning til næstu þriggja ára sem miðar að því að styrkja enn frekar hreyfingu og hollt mataræði meðal barna og ungmenna, auk þess að styðja við framkvæmd og þróun keppninnar. Samstarfið markar jafnframt aukna áherslu á bæði hreyfingu og mataræði í starfi Skólahreysti, eins og segir í tilkynningu.
Skólahreysti er hreystikeppni grunnskólabarna í 9. og 10. bekk sem hefur verið sýnd á RÚV ár hvert. Markmið keppninnar er að hvetja börn til almennrar hreyfingar og þátttöku í íþróttum þar sem keppendur reyna að mestu á eigin líkamsþyngd í fjölbreyttum þrautum.
Kynslóðaskipti hafa jafnframt orðið hjá Skólahreysti, þar sem þrír synir stofnenda hafa tekið við rekstri keppninnar. Axel Óskar Andrésson er nú framkvæmdastjóri keppninnar, en foreldrar hans, Andrés Guðmundsson og Lára Berglind Helgadóttir, hafa staðið að Skólahreysti frá upphafi.
„Með nýrri kynslóð koma nýjar áherslur en við horfum þó alltaf í gildin sem mamma og pabbi hafa fylgt í öll þessi ár. Stuðningur samstarfsaðila eins og Krónunnar skiptir miklu máli til að halda áfram að þróa og efla Skólahreysti. Það skiptir okkur einnig máli að fá inn sterkan aðila á matvörumarkaði sem hefur skýra sýn á lýðheilsu því þetta snýst ekki bara um hreysti og hreyfingu, heldur einnig um hollt og gott mataræði. Án góðs eldsneytis gerist lítið.
Keppnin var fyrst haldin árið 2005 og þá tók meðal annars þátt Annie Mist Þórisdóttir sem síðar varð ein fremsta CrossFit-íþróttakona heims. Skólahreysti hefur því frá upphafi verið frábær stökkpallur fyrir krakka sem vilja láta til sín taka í íþróttum og stuðningur Krónunnar gerir okkur kleift að efla enn frekar lýðheilsu og hreyfingu grunnskólabarna í 9. og 10. bekk,“ segir Axel.
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, segir samstarfið falla vel að stefnu Krónunnar þegar kemur að lýðheilsu og vellíðan ungmenna. Sem hluti af samstarfinu verður keppnin meðal annars tengd við valdar verslanir Krónunnar þar sem gestir fá tækifæri til að kynnast einföldum hreyfiþrautum úr keppninni.
„Við erum mjög ánægð með samstarfið við Skólahreysti. Síðastliðin ár höfum við hjá Krónunni unnið markvisst að eflingu lýðheilsu með því að bjóða upp á breiðara úrval af hollum vörum, efla fræðslu til neytenda og styðja við íþróttir í samfélaginu. Skólahreysti er keppni sem við trúum á því hún er opin öllum og ekki þarf að æfa ákveðna íþrótt til að taka þátt. Það rímar vel við okkar sýn á lýðheilsu. Okkur þykir vænt um að styðja fjölskyldu sem hefur lagt sitt af mörkum í tæp 20 ár að efla hreysti og heilbrigði grunnskólabarna og við hlökkum til að vera hluti af þeirri sögu,“ segir Guðrún.