fbpx
Þriðjudagur 21.apríl 2026
Fréttir

Móðir 14 ára stúlku sem arabískir menn eru sagðir hafa táldregið tjáir sig – Áhyggjufull þegar hún náði ekki sambandi við dóttur sína

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 21. apríl 2026 15:00

Lögreglustöðin við Hverfisgötu. Mynd: Maggi gnúsari.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Móðir annarrar af tveimur 14 ára stúlkum sem þrír menn á þrítugs- og fertugaldri eru grunaðir um að hafa táldregið segir að atvikið hafi átt sér stað innan útivistartíma. Hafi það valdið henni miklum áhyggjurm að hún náði ekki í dóttur sína í nokkurn tíma áður en lögregla blandaði sér í málið.

Nútíminn greinir frá þessu og vísar í færslu sem móðirin birti í Facebook-hópnum Mæðratips.

RÚV greindi frá því á mánudag að þrír menn á þrítugs- og fertugsaldri hafi verið handteknir um helgina, grunaðir um að hafa táldregið tvær 14 ára stúlkur. Voru stúlkurnar farþegar í bíl með mönnunum. Samkvæmt heimildum RÚV eru mennirnir af erlendum uppruna og samkvæmt heimildum móður stúlkunnar eru þeir arabískir.

Móðirin segir afar mikilvægt að leiðrétta þá villu í umræðunni að stúlkurnar hafi verið á ferli að næturlagi, atvikið hafi verið innan útivistartíma og þessum börnum séu sett skýr mörk. Það komi hins vegar ekki í veg fyrir að svona atvik geti átt sér stað:

„Um ræðir einstaklinga sem hafa beitt blekkingum, m.a. logið til um aldur sinn til að ná trausti ungra stúlkna og fá þær til að hitta sig. Í þessu tilviki voru stúlkurnar sóttar að kvöldi til í Grafarvogi og skömmu síðar hafði lögregla afskipti af málinu.

Áður en það gerðist hafði ég ítrekað reynt að ná sambandi við dóttur mína án árangurs. Ég náði ekki sambandi við hana og símar þeirra voru slökktir, sem olli mér miklum áhyggjum. Samkvæmt því sem kom fram síðar fengu þær ekki að hlaða símana sína á meðan þær voru í bílnum. Stuttu síðar hafði hún samband frá lögreglustöð og bað mig um að koma strax.“

Segir í færslu móðurinnar á Mæðratips. Hún vill leggja áherslu á að ábyrgðin liggi alfarið hjá þeim fullorðnu aðilum sem beittu blekkingum, ekki hjá börnunum eða foreldrum þeirra.

Konan segir ennfremur í færslu sinni:

„Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég fékk og sá sjálf í tengslum við málið eru þessir menn af arabískum uppruna. Sú staðreynd er nefnd hér til lýsingar á atvikinu, ekki sem alhæfing um nokkurn hóp fólks.“

Hún segir mikilvægt að ræða við börn um öryggi á netinu og minna þau á að treysta ekki ókunnugum. Leggja áherslu á að fara aldrei upp í bíl með einstaklingum sem þau þekkja ekki.

„Þrátt fyrir meðvitund og samtöl á heimili okkar átti þetta sér stað. Þetta undirstrikar að aðilar sem standa að svona háttsemi geta verið útsjónarsamir og sannfærandi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Tók lögreglumann hengingartaki í bílakjallara og þrengdi að öndunarvegi hans

Tók lögreglumann hengingartaki í bílakjallara og þrengdi að öndunarvegi hans
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Ása segir frá augnablikinu þegar eiginmaðurinn játaði allt fyrir henni – „Hann virtist mjög taugaóstyrkur“

Ása segir frá augnablikinu þegar eiginmaðurinn játaði allt fyrir henni – „Hann virtist mjög taugaóstyrkur“
Fréttir
Í gær

Albani ákærður fyrir fíkniefnabrot og peningaþvætti á Akureyri

Albani ákærður fyrir fíkniefnabrot og peningaþvætti á Akureyri
Fréttir
Í gær

Vísað frá Íslandi – Leitaði ráða hjá gervigreind um hvernig svara ætti lögreglu

Vísað frá Íslandi – Leitaði ráða hjá gervigreind um hvernig svara ætti lögreglu