
Sextug kona lést í eldsvoða sem varð í þriggja hæða fjölbýlishúsi í bænum, Los Realejo, í norðurhluta Tenerife, skammt frá höfuðborginni Santa Cruz. Eldsvoðinn varð á laugardagsnóttina en konan sem lést fékk hjartaáfall í kjölfar reykeitrunar.
Canarian Weekly greinir frá.
Sjö aðrir íbúar í húsinu fengu reykeitrun og þar af voru þrír fluttir á sjúkrahús. Fengu þau hjartaáfall en sjúkraflutningamenn náðu að endurlífga þau áður en þeim var komið í hendur heilbrigðisstarfsfólks á Bellevue-sjúkrahúsinu á Tenerife.
Eldurinn braust út um kl. 3:30 um nóttina á jarðhæð hússins og breiddist hratt um allt húsið. Þurfti að flytja 30 manns út úr húsinu. Eldsupptök eru enn ókunn en unnið er að rannsókn málsins.