fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Eyjan

Allir viti um hvað verði spurt í þjóðaratkvæðagreiðslunni

Eyjan
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Davíð Þór Björgvinsson fyrrum prófessor í lögfræði og fyrrverandi dómari við Landsrétt og Mannréttindadómstól Evrópu segir í ítarlegri grein, á Eyjunni, um þá niðurstöðu Landskjörstjórnar að fyrirhuguð spurning sem spyrja eigi í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu, um hvort halda eigi áfram með aðildarviðræður við Evróðusambandið, sé óskýr að þvert á móti sé spurningin skýr. Segir Davíð að raunar geri allir sér grein fyrir um hvað verið sé að spyrja.

Landskjörstjórn gerði athugasemd við að spurningin og möguleg svör væru eftirfarandi:

Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu? Já, halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Nei, ekki halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Davíð Þór vísar til þeirrar niðurstöðu Landskjörstjórnar að ekki sé einhugur um hvort hlé hafi verið gert á aðildarviðræðunum og því auki það á óskýrleika spurningarinnar að setja hana fram með þessum hætti. Davíð Þór segist ósammála því mati Landskjörstjórnar að með þessari framsetningu sé verið að gefa sér þá forsendu að umsókn um aðild, sem lögð var fram í tíð ríkisstjórnarinnar sem var við völd frá 2009-2013, sé enn í gildi:

„Á þessu er munur. Þetta er réttmætt þegar öll gögn málsins liggja fyrir, svo sem ítarlegt minnisblað utanríkisráðuneytisins um málið, yfirlýsingar frá ESB um að umsóknin sé enn í gildi frá þeirra sjónarmiði og sambærilegar yfirlýsingar frá ríkisstjórninni líka. Það er því augljóslega nokkuð traustur grundvöllur til þess að líta á það sem staðreynd að umsóknin sé í gildi, en ekki gefna forsendu.“

Skoðun

Davíð Þór andmælir einnig því atriði í umsögn Landskjörstjórnar að gera megi ráð fyrir að sé kjósandi enn þá á þeirri skoðun, eftir að hafa kynnt sé málið, að engin umsókn sé í gildi, muni hann einfaldlega velja nei:

„Ástæðan er þá sú að hann telur enga umsókn í gildi, eða bara, sem er miklu líklegra, að hann vilji ekki Ísland í ESB. Ég sé ekki að sterk rök standi til þess að slíkur kjósandi þurfi að vera í teljandi vafa um hvort hann á að segja já eða nei. Hann hefur líka nokkra mánuði til að finna út úr því áður en hann mætir í kjörklefann.“

Davíð Þór er sömuleiðis ósammála þeirri niðurstöðu Landskjörstjórnar að með framsetningu spurningarinnar sé verið að gefa sér þá forsendu að fyrir liggi gild umsókn:

„Ég hef í raun skilið orðalagið svo að það feli fyrst og fremst í sér almenna tilvísun í þá óumdeildu staðreynd að í gangi voru viðræður sem var síðan hætt, án tillits til þess hvernig að því var formlega staðið. Mitt „já“ myndi þá einfaldlega þýða að viðræðum sem var hætt yrði haldið áfram og þá með því að endurnýja umsóknina ef ESB teldi það nauðsynlegt (sem vitað er með vissu að það gerir ekki!). Ég veit auðvitað ekki fyrir víst hvernig aðrir kjósendur myndu líta á sitt já að þessu leyti.“

„Ég held að flestir kjósendur líti raunar á málið með þessum hætti, fremur en að þeir setji fyrir sig lagaleg eða tæknileg úrlausnarefni um hvort umsókn var réttilega dregin til baka eða ekki. Ég held að í raun hafi þetta aldrei skipt neinu máli um hug kjósenda til þess hvert stefna beri um aðild eða ekki aðild að ESB og hvort þeir segja já eða nei í atkvæðagreiðslunni.“

Allir vita

Davíð Þór veltir fyrir sér ýmsum mögulegum breytingum á orðalagi spurningarinnar en telur óheppilegt að hringlað sé með efni spurningarinnar á þessum tímapunkti enda sé lífleg umræða farin af stað í samfélaginu:

„Í þeirri umræðu hef ég ekki séð eða heyrt neitt sem bendir til þess að þeir sem í henni hafa tekið þátt skilji ekki það sem um er spurt. Á það líka við um þá sem annars eru af því þekktir að snúa út úr orðalagi sem fyrir þorra almennings er kýrskýrt.“

Segir Davíð Þór að spurningin sé því alls ekki óskýr eins og Landskjörstjórn haldi fram:

„Allir sem vilja, vita um hvað er spurt!“

Grein Davíðs Þórs í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan.

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Þankar í tilefni af umsögn landskjörstjórnar

 

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Stóra páskaeggjadramað

Óttar Guðmundsson skrifar: Stóra páskaeggjadramað