fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Pressan

Trump lokar Hormússundi – „Íran mun ekki hagnast af þessari ólöglegu tilraun til FJÁRKÚGUNAR“

Pressan
Sunnudaginn 12. apríl 2026 15:19

Trump er ekki ósnertanlegur. Mynd: Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur bannað siglingar um Hormússundið eftir að hafa vikum saman barist fyrir opnun þess. Hefur hann einnig skipað bandaríska sjóhernum að stöðva skip á hafsvæðum þeirra sem greitt hafa hafnartolla til Írans. Frá þessu greinir hann á Truth Social.

Trump segir að þvert á loforð um að opna Hormússundið hafi það ekki orðið að veruleika með tilheyrandi tjóni fyrir þær þjóðir sem treysta á þessa siglingarleið. Eins hafi Íran fullyrt að hafa komið fyrir sprengjum í sundinu, en Trump segist eiga erfitt með að trúa því þar sem Bandaríkin hafi sprengt íranska sjóherinn „í tætlur“.

Þetta sé mikil smán fyrir Íran og alþjóðlegt orðspor þjóðarinnar og krefst Trump þess enn og aftur að siglingarleiðin verði opnuð. Eftir fund varaforseta Bandaríkjanna við fulltrúa frá Íran, sem fór fram í Islamabad á dögunum, sé það komið á hreint að Íran muni ekki láta af kjarnorkuþróun sinni. Það geti Bandaríkin ekki fellt sig við.

„ÍRAN MUN ALDREI EIGA KJARNORKUVOPN.“

Að öðru leyti hafi fundurinn gengið vel og gátu þjóðirnar tvær fundið lausnir í helstu deilumálum nema hvað kjarnorkumál varðar. Því hefur Trump ákveðið að Bandaríkin muni hér með stöðva för allra skipa sem reyna að sigla um Hormússundið. Annaðhvort fái allir að sigla þarna um, eða enginn. Íran hafi leyft útvöldum að sigla um leiðina gegn gjaldi sem Trump telur jaðra við fjárkúgun á heimsvísu.

„Leiðtogar þjóðar, þá einkum Bandaríkjanna, munu ekki láta fjárkúga sig.“

Eins hefur Trump sagt hernum að leita uppi þau skip á alþjóðahafsvæðum sem hafa borgað Íran til að komast um sundið.

„Enginn sem borgar ólöglegan toll mun fá að ferðast öruggur um hafið. Við munum líka hefjast handa við að eyðileggja allar þær jarðsprengjur sem Íran hefur komið fyrir í sundinu. Og allir Íranir sem skjóta á okkur, eða friðsæl skip, verða SPRENGDIR TIL HELVÍTIS.“

Trump segir að fleiri þjóðir muni aðstoða Bandaríkin í þessu verkefni en tilgreinir þó ekki hvaða þjóðir það eru.

„Íran mun ekki hagnast af þessari ólöglegu tilraun til FJÁRKÚGUNAR. Þeir vilja pening og það sem meira er, þeir vilja kjarnorku. Þar að auki, á viðeigandi tíma, erum við REIÐUBÚNIR FYRIR ALLT og her okkar mun afgreiða það litla sem er eftir af Íran.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Trump er ekki ósnertanlegur – Svona er hægt að koma honum úr embætti

Trump er ekki ósnertanlegur – Svona er hægt að koma honum úr embætti
Pressan
Í gær

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“
Pressan
Í gær

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“
Pressan
Í gær

Vísindamaður aflífar mýtur um rottur

Vísindamaður aflífar mýtur um rottur
Pressan
Í gær

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kviðdómendur grétu við upptöku af síðustu augnablikum sjö ára stúlku

Kviðdómendur grétu við upptöku af síðustu augnablikum sjö ára stúlku
Pressan
Fyrir 2 dögum

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans