fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fókus

Nýtt lag frá Fussumsvei: „Skattheimtumennirnir“ – Fjörugt og hrátt rokk

Fókus
Laugardaginn 11. apríl 2026 09:57

Hljómsveitin Fussumsvei. Frá vinstri: Sigurður Bragason, Kolbeinn Tumi Haraldsson, Valur Arnarson, Garðar Guðjónsson og Ólafur Unnarsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fussumsvei gaf út nýtt lag, „Skattheimtumennirnir“, þann 10. apríl 2026. Lagið er hrátt rokklag og fjallar um mann sem lendir í skuld hjá skattinum, ferðalag hans og uppgjör við þá stöðu sem uppi er. „Skattheimtumennirnir“ var samið á tímabili þar sem hljómsveitin var í mótun og sköpunargleðin í hámarki. Þetta sama ár fyrir síðustu aldamót tók Fussumsvei þátt í músíktilraunum með lagið. Hljóðmynd lagsins sameinar áhrif frá fjörugu kassagítarrokki, þéttum rythma frá bassa og trommum ásamt frumlegu orgelspili og skapar þannig orkumikla upplifun.

Lagið er það fyrsta í röð laga sem verða gefin út núna næstu misseri og eiga það sameiginlegt að mótast af líflegum hljóðfæraleik og frumlegri textagerð.

Fussumsvei voru starfandi í kringum síðustu aldamót og eitthvað með hléum eftir það, og hefur gefið út lög á streymisveitum síðan 2022, eða frá því að sveitin tók til starfa aftur eftir langt hlé. Breiðskífa sveitarinnar, Fussum og sveium, kom svo út í júlí í fyrra. Tónlistin einkennist af fjölbreytileika, með sterkri áherslu á hnittna texta.

Lagið „Skattheimtumennirnir“ er í spilaranum hér fyrir neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi
Fókus
Fyrir 3 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd