fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Pressan

Læknir segir þessar þrjár kaffitegundir þær verstu fyrir heilsuna

Pressan
Sunnudaginn 12. apríl 2026 11:30

Það eru til ansi margar tegundir af kaffi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjá mörgum líður ekki sá dagur án þess að þeir drekki kaffi. Sumir drekka mikið, aðrir enn meira og aðrir lítið. Flestir vita eflaust að svart kaffi er hollara en kaffi með sýrópi eða rjóma en fæstir vita hvaða kaffitegundir eru þær óhollustu.

Alexandra Fileva, læknir, segir að út frá heilbrigðissjónarmiðum séu ákveðnar kaffitegundir verri fyrir heilsuna en aðrar.

Hún segir að þriggja tegunda eigi að njóta með gætni og bendir einnig á að í mörgum vinsælum kaffidrykkjum séu efni sem geta haft neikvæð áhrif á meltinguna og efnaskiptin ef þeir eru drukknir of oft.

Efst á listanum yfir óhollasta kaffið eru hin svokölluðu 3-í-1 kaffi. Þetta eru praktískir pokar sem þarf bara að setja í heitt vatn og kaffið er tilbúið. Í þeim er yfirleitt mikið af sykri, hertri plöntufitu og tilbúnum aukaefnum.

Fileva sagði í samtali við Magyar Hirlap að þessi blanda geri drykkinn slæman fyrir líkamann því þetta geti valdið meltingarvandamálum.

Hún sagði að drykkir á borð við latte, macchiato og mokka séu ekki mikið skárri.

Þessir vinsælu drykkir, sem innihalda mjólk og sýróp, eru hitaeiningaríkir, sykurríkir og innihalda mikið af mettaðri fitu. Ef maður tekur ekki tillit til þess í daglegri matarneyslu sinni, getur dagleg drykkja á þessum drykkjum orsakað hátt blóðfitumagn, efnaskiptavandamál og í versta tilfelli fitulifur.

Frappuccino er síðan nefnt sem þriðji óholli drykkurinn. Þetta kalda kaffi, sem líkist einna helst eftirrétti, inniheldur mikið af sykri, gerviefnum og þykkingarefnum.

Fileva benti einnig á að ódýrt skyndikaffi sé sjaldnast gott fyrir heilsuna. Hún mælir því með einföldu, nýlöguðu kaffi án sykurs og rjóma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Nokkrar ástæður þess að fólk hefur ekki stigið fæti á tunglið síðan 1972

Nokkrar ástæður þess að fólk hefur ekki stigið fæti á tunglið síðan 1972
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit
Pressan
Í gær

Banvænn misskilningur kom upp um hið sanna eðli lögreglumannsins

Banvænn misskilningur kom upp um hið sanna eðli lögreglumannsins
Pressan
Í gær

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“