fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Pressan

Fyrrum olígarki varar við – Pútín er að undirbúa eiturefnaárás á Vesturlönd

Pressan
Laugardaginn 11. apríl 2026 16:30

Mikhail Khodorkovsky. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum olígarkinn Mikhail Khodorkovsky segir að Vladímír Pútín og skósveinar hans séu að undirbúa eiturefnaárás á Vesturlönd og að hún muni sýna hversu berskjölduð Vesturlönd séu.

„Markmiðið er ekki að drepa ákveðna aðila, það er að láta fólki finnast það berskjaldað,“ sagði hann að sögn The Guardian.

Khodorkovsky óttast að Bretland verði aftur fyrir barðinu á Rússum en rússneska leyniþjónustan notaði taugaeitrið Novochock í Salisbury 2018 þegar hún reyndi að ráða hinn landflótta rússneska njósnara Sergei Skripal af dögum. Þá var eitrað fyrir honum og dóttur hans.

Þau lifðu árásina af en bresk kona lést eftir að hún komst í snertingu við eitrið.

Khodorkovsky sagði að hugsanleg árás muni ekki snúast um að drepa ákveðna einstaklinga, þvert á móti: „Það skiptir ekki öllu hvort fórnarlambið deyr eða ekki. Það mikilvægasta er að skapa tilfinninguna um varnarleysi,“ sagði hann.

Hann hvetur því Vesturlönd til að svara slíkri árás af fullum þunga til að hræða Rússa frá því að fremja fleiri slíkar. Í þessu samhengi vísaði hann til kalda stríðsins þar sem árásum af þessum toga fækkaði mikið eftir að Vesturlönd svöruðu af fullum þunga.

Khodorkovsky býr í Bretlandi þar sem hann er í útlegð eftir að það slettist upp á vinskap hans við Vladímír Pútín. Hann var eitt sinn ríkasti maður Rússlands en var stungið í steininn 2003 í tengslum við mál sem er sagt vera pólitískt og runnið undan rifjum Pútíns.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Nokkrar ástæður þess að fólk hefur ekki stigið fæti á tunglið síðan 1972

Nokkrar ástæður þess að fólk hefur ekki stigið fæti á tunglið síðan 1972
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit
Pressan
Í gær

Banvænn misskilningur kom upp um hið sanna eðli lögreglumannsins

Banvænn misskilningur kom upp um hið sanna eðli lögreglumannsins
Pressan
Í gær

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“