fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Fréttir

Birgitta Líf komin í nýtt starf – „Spennandi að fá tækifæri“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 9. mars 2026 10:53

Birgitta Líf Björnsdóttir. Mynd: Facebook.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Birgitta Líf Björnsdóttir hætti sem markaðsstjóri fjölskyldufyrirtækisins World Class fyrir nokkrum dögum og tók Anna Bergmann við starfi hennar. 

Birgitta Líf er nú komin í nýtt starf og fór ekki langt, en Viðskiptablaðið greinir frá því að hún er orðin framkvæmdastjóri þróunar- og markaðssviðs World Class og Laugar Spa.

Birgitta Líf er með BA-gráðu í lögfræði, hefur lokið meistaranámi í alþjóðaviðskiptum og miniMBA námi í markaðsfræði.

Í tilkynningu þar sem greint er frá nýju starfi hennar segir að starfsemin hafi vaxið og þróast hratt undanfarin ár. Breytingin sé liður í áframhaldandi uppbyggingu og þróun starfseminnar og komi til samhliða ráðningu nýs markaðsstjóra fyrirtækjanna.

„World Class og Laugar Spa hafa vaxið og þróast hratt undanfarin ár og það er spennandi að fá tækifæri til að leiða áframhaldandi þróun markaðs- og þjónustumála fyrirtækjanna. Við erum með sterkt teymi og skýra framtíðarsýn og ég hlakka til að vinna áfram að uppbyggingu og þróun starfseminnar,“ segir Birgitta Líf í tilefni nýs starfs.

Birgitta Líf hefur starfað hjá World Class um árabil og gegnt þar lykilhlutverki í uppbyggingu markaðsstarfs fyrirtækisins. Undanfarin ár hefur hún stýrt markaðsmálum World Class og Laugar Spa og leitt fjölbreytt verkefni sem tengjast vörumerkjauppbyggingu, stafrænum miðlum og þróun markaðs- og þjónustulausna.

Í nýju hlutverki mun Birgitta Líf leiða þróunar- og markaðssvið fyrirtækjanna með áherslu á stefnumótun, áframhaldandi uppbyggingu vörumerkjanna og þróunarverkefni sem styðja við vöxt og þjónustu við viðskiptavini.

„Undir sviðinu starfar öflugt teymi sem vinnur að markaðs- og þróunarmálum fyrirtækjanna, þar á meðal nýráðin Anna Bergmann markaðsstjóri, Heiðrún Guðmundsdóttir stafrænn markaðsfræðingur, Kjartan Oddason yfirmaður stafrænnar stefnu og hönnunar og Ásthildur Bára Jensdóttir rekstrarþróunarstjóri,“ segir í tilkynningunni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Borgarlínan klýfur Sjálfstæðisflokkinn í borginni

Borgarlínan klýfur Sjálfstæðisflokkinn í borginni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Arnar Helgi telur greiðslu fyrir p-stæði bæta aðgengi – „Fjárhagslegt hagsmunamál“

Arnar Helgi telur greiðslu fyrir p-stæði bæta aðgengi – „Fjárhagslegt hagsmunamál“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskir fjárhundar í alvarlegu dýraníðsmáli – „Við viljum fá þessi dýr sem er verið að fara illa með og koma þeim á ástrík heimili“

Íslenskir fjárhundar í alvarlegu dýraníðsmáli – „Við viljum fá þessi dýr sem er verið að fara illa með og koma þeim á ástrík heimili“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þetta er sú stofnun sem Íslendingar bera mest traust til

Þetta er sú stofnun sem Íslendingar bera mest traust til