fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fréttir

Bíræfnir dósaþjófar í Eyjum bættu fyrir brot sín – Hlutu þrátt fyrir það dóm

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 4. mars 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmenn sem ítrekað stálu ótilgreindu magni af endurvinnanlegum drykkjarumbúðum úr söfnunargámi ÍBV-Íþróttafélags í Vestmannaeyjum hlutu dóm fyrir þjófnaðinn í gær. Annar karlmaðurinn hlaut 90 daga skilorðsbundinn dóm og hinn 30 daga skilorðsbundinn dóm. 

Engan sakarkostnað leiddi af málinu og höfðu mennirnir gert upp við ÍBV samkvæmt kröfu félagsins áður en dómur féll.

Mennirnir voru ákærðir fyrir þjófnað og peningaþvætti. Í dómnum er rakið að annar maðurinn hafði ítrekað, að minnsta kosti fjórtán sinnum á tímabilinu frá 8. ágúst 2023 til 16. nóvember 2023 aflað sér ávinnings allt að fjárhæð 1.014.420 krónur með því að skila inn endurvinnanlegum drykkjarumbúðum til Endurvinnslunnar hf. sem ákærði stal úr söfnunargámi ÍBV-Íþróttafélags. Námu upphæðirnar frá 22.120 kr. til 164.180 kr.

Hinn maðurinn hafði að minnsta kosti tvisvar sinnum á tímabilinu frá 21. september 2023 og til 18. október 2023, aflað sér ávinnings allt að fjárhæð 45.320 krónur með því að skila inn endurvinnanlegum drykkjarumbúðum til Endurvinnslunnar hf. sem ákærði stal úr söfnunargámi ÍBV-Íþróttafélags.

ÍBV gerði einkaréttarkröfu að fjárhæð 1.500.000 kr. Auk þess að krefjast þess að mennirnir greiddu allan kostnað vegna innheimtu kröfunnar, 255.000 kr. auk vsk.

Mennirnir tveir mættu fyrir dóm 12 febrúar, óskuðu ekki eftir verjanda og játuðu brot sín skýlaust. Áður en dómur féll, eða þann 24. febrúar, höfðu mennirnir gert fullnaðarskil á einkaréttarkröfu ÍBV og því var krafan afturkölluð.

Taldi dómari því eins og áður sagði refsingu mannanna hæfilega með 90 og 30 daga fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Hnikarr hneykslaður eftir að hann fékk svar frá Fjársýslunni – „Var ekki ríkisstofnun sæmandi“

Hnikarr hneykslaður eftir að hann fékk svar frá Fjársýslunni – „Var ekki ríkisstofnun sæmandi“
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Pétur Gautur varar við Facebook-hópi þar sem reynt var að rústa mannorði hans

Pétur Gautur varar við Facebook-hópi þar sem reynt var að rústa mannorði hans
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Segir það þvætting að til standi að rukka fyrir Reykjanesbraut og Suðurlandsveg

Segir það þvætting að til standi að rukka fyrir Reykjanesbraut og Suðurlandsveg
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Hópárásin í Túnunum: Mætti til að innheimta skuld og endaði á sjúkrahúsi

Hópárásin í Túnunum: Mætti til að innheimta skuld og endaði á sjúkrahúsi
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Vilhjálmur áhyggjufullur: „Fyrir þann hóp myndi gjaldtaka hafa verulega íþyngjandi áhrif“

Vilhjálmur áhyggjufullur: „Fyrir þann hóp myndi gjaldtaka hafa verulega íþyngjandi áhrif“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Nigel Farage styður nýnasista og smættar minnihlutahópa á Cameo

Nigel Farage styður nýnasista og smættar minnihlutahópa á Cameo
Fréttir
Í gær

Sverrir Norland hneykslaður – „Viðurstyggilegt við að búðarstarfsfólk þurfi að fara niður á skeljarnar og grátbiðja viðskiptavini“

Sverrir Norland hneykslaður – „Viðurstyggilegt við að búðarstarfsfólk þurfi að fara niður á skeljarnar og grátbiðja viðskiptavini“
Fréttir
Í gær

Bælingarmál séra Jakobs Rolland fréttist til Vatíkansins

Bælingarmál séra Jakobs Rolland fréttist til Vatíkansins
Fréttir
Í gær

Sjö handteknir eftir meiriháttar líkamsárás

Sjö handteknir eftir meiriháttar líkamsárás
Fréttir
Í gær

Fagna áformum um hertari refsingar við ólöglegri dreifingu á sjónvarpsefni

Fagna áformum um hertari refsingar við ólöglegri dreifingu á sjónvarpsefni