fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Pressan

Allt á suðupunkti og Trump heitir hefndum vegna þeirra sem létust

Pressan
Mánudaginn 2. mars 2026 08:03

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur heitið hefndum vegna þeirra bandarísku hermanna sem létust í árásum Írana á bandaríska herstöð í Kúveit í gær. Þrír létust í árásinni og nokkrir særðust alvarlega.

Í ávarpi til bandarísku þjóðarinnar í gærkvöldi hvatti hann leiðtoga Írans til að leggja niður vopn „ella mæta öruggum dauða“ eins og hann orðaði það.

Þá hvatti hann írönsku þjóðina til að rísa upp gegn sitjandi yfirvöldum. „Verið hugrökk, verið djörf og takið landið ykkar aftur,“ sagði hann.

Írönsk yfirvöld létu hótanir Trumps sem vind um eyru þjóta og segir Ali Larijani, einn helsti ráðgjafi Ali Khamenei, æðstaklerks Írans sem var drepinn á laugardag, að Íranir muni ekki gefast upp og ekki setjast að samningaborðinu við Bandaríkin.

Sprengjum hefur rignt yfir Íran, Ísrael, Sádi-Arabíu, Barein, Sameinuðu arabísku furstadæmin og bandarískar herstöðvar á svæðinu. Ísraelsmenn gerðu árásir á Beirút, höfuðborg Líbanons í morgun, eftir að Hezbollah-samtökin skutu eldflaugum yfir landamærin. Yfir 30 manns eru sagðir hafa látist í árásum Ísraelshers.

Þá berast fréttir af því að háværar sprengingar hafi heyrst í Dubai, Doha, Jerúsalem og Manama í Barein í morgun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Vísindamenn segja niðurstöður nýrrar rannsóknar um gagnaver mikið áhyggjuefni

Vísindamenn segja niðurstöður nýrrar rannsóknar um gagnaver mikið áhyggjuefni
Pressan
Í gær

Pútín breytir reglunum – Nú geta fleiri verið sendir á vígvöllinn

Pútín breytir reglunum – Nú geta fleiri verið sendir á vígvöllinn
Pressan
Í gær

Ný lög í Rússlandi sem eiga að vernda rússneska ríkisborgara erlendis

Ný lög í Rússlandi sem eiga að vernda rússneska ríkisborgara erlendis
Pressan
Í gær

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um
Pressan
Í gær

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna