fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fókus

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Fókus
Föstudaginn 27. febrúar 2026 09:24

Bobby í þáttunum We Own This City.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski leikarinn Bobby J. Brown, sem er einna þekktastur fyrir hlutverk sitt í þáttunum The Wire, er látinn 62 ára að aldri.

Brown lést í kjölfar eldsvoða sem kom upp í hlöðu við sveitasetur hans í Maryland í Bandaríkjunum á miðvikudag.

Dóttir leikarans greindi frá andlátinu, samkvæmt frétt TMZ, og segir hann hafa látist af völdum reykeitrunar.

Talið er að eldurinn hafi kviknað þegar Brown fór inn í hlöðuna til að gangsetja ökutæki með startköplum.

Eldur virðist hafa komið upp og er Brown sagður hafa kallað á fjölskyldumeðlim og beðið um að slökkvitæki yrði sótt.

Þegar hann sneri til baka var eldurinn búinn að dreifa úr sér og Brown hvergi sjáanlegur.

Brown fór með hlutverk lögreglumannsins Bobby Brown í The Wire og þá kom hann fram í fjölda annarra sjónvarpsþátta og kvikmynda, þar á meðal Law & Order: Special Victims Unit, The Corner, Veep og We Own This City.

Áður en Brown sneri sér að leiklist var hann atvinnumaður í hnefaleikum og vann hann til nokkurra verðlauna á því sviði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi
Fókus
Fyrir 3 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd
Fókus
Fyrir 1 viku

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist
Fókus
Fyrir 1 viku

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu