fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Pressan

Á bíllinn að vera í D eða N þegar beðið er á rauðu ljósi?

Pressan
Laugardaginn 28. febrúar 2026 18:30

Það þarf oft að bíða á rauðu ljósi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ökumenn, sem aka sjálfskiptum bílum, kannast eflaust flestir við að hafa velt fyrir sér hvort þeir eigi hafa bílinn í D eða N á meðan beðið er á rauðu ljósi.

Skoðanir eru skiptar á þessu en hvað  segja bifvélavirkjar um þetta?

Sanook kannaði málið og komst að því að það sé í lagi að hafa bílinn í D og stíga á bremsuna á meðan beðið er en þó ekki of lengi.

Þegar bíllinn er í D og fóturinn er á bremsunni vinnur sjálfskiptingin enn og það myndast smávegis hiti í gírolíunni og togbreytinum.

Kerfið er hannað til að takast á við svona stopp í allt að tvær mínútur án þess að vandamál komi upp.

Ofhitnun kemur yfirleitt ekki fram fyrr en við mikið álag eins og þegar ekið er upp brattar brekkur, aksturslagið er nánast árásargjarnt eða ef bíllinn stendur of lengi kyrr í mikilli umferð.

Sumir bílstjórar skipta yfir í N á meðan beðið er á rauðu ljósi en ávinningurinn af því er takmarkaður að sögn bifvélavirkja.

Það er lítill munur á eldsneytisnotkun í D eða N. Sumir hafa áhyggjur af að skiptingin slitni ef oft er skipt á milli D og N en gírkassar nútímans eru hannaðir til að geta tekist á við margar skiptingar án vandræða. Það er því hættulaust að nota N öðru hvoru en kannski er ekki svo snjallt að setja í N í hvert sinn sem stoppað er á rauðu ljósi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Nokkrar ástæður þess að fólk hefur ekki stigið fæti á tunglið síðan 1972

Nokkrar ástæður þess að fólk hefur ekki stigið fæti á tunglið síðan 1972
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit
Pressan
Í gær

Banvænn misskilningur kom upp um hið sanna eðli lögreglumannsins

Banvænn misskilningur kom upp um hið sanna eðli lögreglumannsins
Pressan
Í gær

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“