fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Mögnuð endurkoma í Meistaradeildinni – Dortmund úr leik eftir ótrúlega dramatík

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 20:01

Ramy Bensebaini Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Atalanta tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir æsispennandi viðureign gegn Dortmund þar sem allt var undir fram á lokasekúndur. Dortmund vann 2-0 sigur í fyrri leiknum.

Heimamenn byrjuðu af krafti og minnkuðu muninn strax á 5. mínútu þegar Gianluca Scamacca nýtti sér mistök í vörn Dortmund og skoraði. Skömmu fyrir leikhlé jafnaði Davide Zappacosta einvígið með skoti sem breyttist á leiðinni í netið.

Atalanta lét þar ekki staðar numið og Mario Pasalic bætti við þriðja markinu rétt fyrir hálfleik, sem þýddi að liðið hafði snúið taflinu sér í vil.

Dortmund neitaði þó að gefast upp og Karim Adeyemi minnkaði muninn þegar um fimmtán mínútur voru eftir.

Þegar allt stefndi í framlengingu dró til tíðinda í uppbótartíma þegar Ramy Bensebaini fékk rautt spjald og vítaspyrna var dæmd.

Lazar Samardzic skoraði af öryggi úr vítinu og tryggði Atalanta dramatískan sigur. Liðið mætir Arsenal eða Bayern í næstu umferð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Leikmaður Liverpool sparaði ekki stóru orðin eftir leik – Skaut harkalega á erkifjendurna

Leikmaður Liverpool sparaði ekki stóru orðin eftir leik – Skaut harkalega á erkifjendurna
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London