

Almannatengillinn og lögfræðingurinn Hödd Vilhálmsdóttir tók í gær til starfa hjá Sýn en í gærkvöld birtist viðtal hennar við tónlistarmanninn KK í þættinum Ísland í dag.
Samkvæmt heimildum DV er um að ræða ótímabundið hlutastarf við dagskrárgerð á Íslandi í dag.
Hödd starfaði áður í þættinum á árunum 2011 til 2014 og hefur því töluverða reynslu af sjónvarpi. Hún hefur mest sinnt almannatengslastörfum síðustu árin.