

Viðar Örn Kjartansson er að skrifa undir hjá Selfoss í dag og mun leika með liðinu í 2. deild karla í sumar. Þetta kom fram í Þungavigtinni í dag.
Selfoss hefur nú staðfest skiptin.
Kristján Óli Sigurðsson sagði frá þessu og Ingimar Helgi Finnsson sem kemur að starfinu hjá Selfoss var gestur, hann viðurkenndi að gleði yrði í bænum um helgina.
Viðar hefur síðustu tvö sumur verið hjá KA en framherjinn knái fagnar 36 ára afmæli sínu á þessu ári.
Viðar átti magnaðan feril í atvinnumennsku en hann lék meðal annars í Kína, Rússlandi og Tyrklandi auk þess að spila í Noregi og Svíþjóð.
Viðar er að snúa heim en hann lék síðast með Selfoss sumarið 2012, endurkoma hans er nú heim fjórtán árum síðar.
Framherjinn lék 28 landsleiki fyrir Ísland á ferli sínum og skoraði fjögur mörk fyrir land og þjóð. Hjá Selfoss er fyrrum samherji hans úr landsliðinu, Jón Daði Böðvarsson en Selfoss féll úr Lengjudeildinni síðasta sumar.