fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Hrunið á ferlinum heldur áfram – Ætlar að rifta samningi sínum eftir þessi framkomu

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brasilíski miðjumaðurinn Philippe Coutinho hyggst rifta samningi sínum við Vasco da Gama, samkvæmt fréttum í heimalandinu.

Coutinho, sem er 33 ára, var á sínum tíma einn dýrasti leikmaður sögunnar þegar hann fór frá Liverpool til Barcelona fyrir um 145 milljónir punda árið 2018.

Ferill hans hefur þó dalað verulega síðan og hann náði aldrei þeim hæðum sem margir bjuggust við eftir félagaskiptin stóru.

Hann sneri aftur til uppeldisfélags síns, Vasco, á varanlegum samningi á síðasta ári en nú virðist sá kafli vera á enda. Stuðningsmenn liðsins hafa baulað á hann að undanförnu og herma fréttir að það hafi haft úrslitaáhrif á ákvörðun hans.

Forseti félagsins, Pedrinho, hefur þegar upplýst starfsfólk um stöðuna og þjálfari liðsins reynt að fá Coutinho til að endurskoða ákvörðun sína. Opinber yfirlýsing er væntanleg á næstu dögum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Leikmaður Liverpool sparaði ekki stóru orðin eftir leik – Skaut harkalega á erkifjendurna

Leikmaður Liverpool sparaði ekki stóru orðin eftir leik – Skaut harkalega á erkifjendurna
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London