fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Hefja formlega rannsókn eftir gærkvöldið

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 13:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

UEFA hefur hafið rannsókn á ásökunum um kynþáttaníð sem Vinicius Junior setti fram í kjölfar leiks Real Madrid og Benfica í Meistaradeild Evrópu á þriðjudag.

Vinicius skoraði sigurmark Real Madrid í 1-0 útisigri á Benfica í fyrri leik liðanna, en atburðarásin utan vallar dró einnig mikla athygli. Brasilíski kantmaðurinn hélt því fram eftir markið að hann hefði orðið fyrir kynþáttaníði.

Atvikið átti sér stað skömmu eftir markið þegar Vinicius lenti í orðaskiptum við leikmann Benfica, Gianluca Prestianni.

Sást til Prestianni halda treyju fyrir munninn á meðan hann virtist segja eitthvað við Vinicius. Í kjölfarið fór Vinicius strax til dómara leiksins og sakaði andstæðing sinn um kynþáttafordóma.

UEFA hefur nú staðfest að málið sé komið í formlegt ferli. Í yfirlýsingu frá sambandinu segir að siða- og agasaksóknari UEFA hafi verið skipaður til að rannsaka ásakanir um mismunun í leik liðanna í umspili Meistaradeildarinnar 17. febrúar 2026.

Sambandið tekur fram að frekari upplýsingar verði veittar þegar rannsókn málsins vindur fram. Málið hefur þegar vakið mikla umræðu í knattspyrnuheiminum, enda hafa kynþáttaníð í garð Vinicius verið ítrekað til umfjöllunar á undanförnum árum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Leikmaður Liverpool sparaði ekki stóru orðin eftir leik – Skaut harkalega á erkifjendurna

Leikmaður Liverpool sparaði ekki stóru orðin eftir leik – Skaut harkalega á erkifjendurna
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London