fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Britney selur höfundarréttinn fyrir svimandi fjárhæð

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 09:30

Britney. Mynd: Getty.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríska tónlistarkonan Britney Spears hefur selt höfundaréttinn að allri tónlist sinni í risastórum samningi, Page Six greinir frá.

Grammy-verðlaunahafinn afhenti hlutabréf sín til Primary Wave, einkarekins tónlistarútgáfufyrirtækis með aðsetur í New York borg, þann 30. desember, samkvæmt skjölum sem TMZ fékk aðgang að á þriðjudag.

Heimildarmaður sagði að áætlað væri að samningurinn væri á svipuðum nótum og 200 milljóna dala ávísunin sem Justin Bieber fékk þegar hann seldi skrá sína árið 2022, eða um 24,5 milljarða króna. Heimildarmaðurinn sagði Spears (44) ánægða með samninginn og fagna með sonum sínum Sean Preston Federline (20) og Jayden James Federline (19).

Salan innheldur vinsælustu lög Britney eins og lög af fyrstu plötu hennar frá 1999, Baby One More Time.Auk þess var fjórða breiðskífa hennar, In The Zone, sem innihélt lagið hennar Toxic frá árinu 2003, einnig innifalin í samningnum. Eftir að hafa gefið út Toxic vann Spears sín fyrstu Grammy-verðlaun fyrir bestu dansplötu árið 2005.

Samningurinn innihélt einnig lög Spears frá síðari hluta tíunda áratugarins eins og (You Drive Me) Crazy, „…Baby One More Time, Oops!… I Did It Again, Everytime, Piece of Me, Hold It Against Me og Gimme More.

Það er ekki óalgengt að tónlistarmenn selji tónlistarmyndbönd sín og Britney fylgir í fótspor Stevie Nicks, Shakiru, KISS, Bruce Springsteen, Phil Collins og Bob Dylan.

Samningurinn kemur eftir að Britney  sór þess eið í janúar 2024 að hún ætlaði aldrei að snúa aftur til tónlistarbransans. Britney gaf út síðustu plötu sína, Glory árið 2016 og síðasta dúett hennar Mind Your Business kom út árið 2023. Síðustu tónleikar hennar voru árið 2018 á Piece of Me tónleikaferðalagi hennar í Austin, Texas.

Britney hjálpar nú syninum Jayden með tónlistarferil hans. „Hún er að hjálpa honum að tengjast við framleiðendur sem hún hefur unnið með áður,“ sagði heimildarmaður við Us Weekly í síðasta mánuði. „Hún vill klárlega að hann noti eldri sambönd hennar svo hann sé verndaður og fái leiðsögn í gegnum þetta. Hún er svo stolt af honum og allri þeirri vinnu sem hann hefur greinilega lagt í ástríðu sína.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Pink sögð skilin við eiginmanninn til 20 ára og bregst reið við – „Mynduð þið vilja segja börnunum okkar frá þessu?

Pink sögð skilin við eiginmanninn til 20 ára og bregst reið við – „Mynduð þið vilja segja börnunum okkar frá þessu?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Dómari skipaði leikaranum að fara í meðferð eftir nýjasta uppátæki hans

Dómari skipaði leikaranum að fara í meðferð eftir nýjasta uppátæki hans
Fókus
Fyrir 3 dögum

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli
Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins
Fókus
Fyrir 5 dögum

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár