fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Hvað gerist í líkamanum ef maður fær ekki nóg af trefjum?

Pressan
Mánudaginn 9. febrúar 2026 06:00

Epli eru trefjarík.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Bandaríkjunum fá um 90% kvenna og 97% karla reglulega ekki nóg af trefjum. Þetta er auðvitað mjög slæmt og benda næringarfræðingar og heilbrigðisstarfsfólk á að flestir þurfi að borða meira af trefjum.

Parade skýrir frá þessu og bendir á að trefjar leggi sitt af mörkum til heilbrigðrar þarmaflóru, hjálpi til við að halda blóðfitunni í jafnvægi sem og blóðsykrinum. Þær geti líka hjálpað til við þyngdarstjórnun.

Ástæðan fyrir lítilli trefjaneyslu Bandaríkjamanna er að þeir borða einfaldlega ekki nóg af trefjaríkum mat á borð við ávexti, grænmeti, belgjurtir og gróft korn að sögn Charlotte Cervantes, lektors og yfirmanns næringarmála hjá Southeast Missouri State University.

Eins borða margir mjög mikið af ofurunnum kjötvörum að sögn Kerri Bewick, sérfræðilæknis og meltingarfærasérfræðings.

Það sem gerist ef nægra trefja er ekki neytt er að sögn Bewick eftirfarandi:

Hægðatregða – Hægðatregða er einn algengasti fylgifiskur lítillar trefjaneyslu. Trefjar hjálpa til við að koma hægðunum í gegnum þarmana fljótt og vel. Trefjaskortur gerir hægðirnar harðar og erfitt verður að koma þeim frá sér.

Krónísk hægðatregða getur valdið öðrum heilbrigðisvandamálum á borð við gyllinæð, endaþarmssprungum og ristilbólgu.

Þú finnur oftar fyrir hungri – Bewick sagði að trefjaneysla auki mettunartilfinninguna og hjálpi fólki að finnast það mett í langan tíma og það geti hjálpað til við að draga úr hitaeininganeyslu og við að hafa stjórn á þyngdinni.

Ef maður borðar ekki nóg af trefjum getur manni fundist maður svangur oftar. Það getur leitt til ofáts og aukinnar neyslu á óhollum mat.

Blóðfita og blóðsykur geta aukist – Trefjar hjálpa til við að lækka blóðsykurmagnið og ef trefjaneyslan er ekki nógu mikil getur blóðsykurmagnið aukist.

Trefjaríkur matur hefur einnig verið tengdur við lægri blóðþrýsting.

Trefjar draga úr upptöku glúkósa í þörmunum og koma þar með í veg fyrir hækkandi blóðsykurmagn. Ef maturinn inniheldur ekki nóg af trefjum getur það valdið auknu magni blóðsykurs og aukið líkurnar á sykursýki 2.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Í gær

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér