
„Ég hef sagt það að markmiðið er að fara í sveitarstjórnarkosningar til að verða pólitískt kjörinn bæjarstjóri. Þegar það er í höfn mun ég segja af mér þingmennsku.“ Þetta sagði Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, eftir að hafa verið valinn oddviti flokksins í Reykjanesbæ en prófkjör fór fram um helgina.
Hann ætlar að segja af sér þingmennsku þegar hann hefur verið kjörinn pólitískur bæjarstjóri í Reykjanesbæ! Hrokinn er áþreifanlegur og enginn vafi að hann verði kjörinn ef marka má viðtal hans við Vísi.is að loknu prófkjöri. Það er eins og Vilhjálmur átti sig ekki á því að það á eftir að kjósa og hann eða Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki unnið neinn sigur.
Flokkurinn er nú í minnihluta í Reykjanesbæ, fékk 28 prósent atkvæða í kosningunum árið 2022 og þrjá menn kjörna í bæjarstjórn af ellefu. Fylgi flokksins í Suðurkjördæmi hefur verið á niðurleið þannig að það er vandséð hvernig Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ geta vænst þess að vinna sæti bæjarstjóra í komandi kosningum. Í Alþingiskosningunum 2024 fékk Sjálfstæðisflokkurinn 19,6 prósent atkvæða í Suðurkjördæmi og tapaði einu þingsæti frá kosningunum 2021 en þá var fylgið 24,6 prósent í kjördæminu. Þannig yfirgaf fimmti hver kjósandi flokkinn milli þessara tveggja kosninga. Guðrún Hafsteinsdóttir leiddi listann í Suðurkjördæmi í báðum kosningunum og það hlýtur að hafa verið henni áfall að missa svo mikið fylgi í síðustu kosningum. Sjálf féll hún úr því að vera fyrsti þingmaður kjördæmisins og tapaði því til Flokks fólksins.
Orðið á götunni er að framboð Vilhjálms Árnasonar til bæjarstjórnar í Reykjanesbæ sýni örvæntingu hans vegna slæmrar stöðu flokksins á Alþingi þar sem hann hefur átt sæti í 12 ár. Vilhjálmur sér væntanlega fram á setu í valdalausum minnihluta út þetta kjörtímabil og jafnvel lengur. Það er ekkert tilhlökkunarefni og því gæti það verið vænleg leið út úr stöðunni að komast í bæjarstjórn og helst í meirihluta þar. Ef litið er á fylgisþróun Sjálfstæðisflokksins þá er það fremur ólíklegt að flokkurinn auki fylgi sitt í Reykjanesbæ úr þeim 28 prósentum sem náðust fyrir fjórum árum og skilaði þremur bæjarfulltrúum. Ætla verður að líkurnar séu meiri á að fylgi flokksins dragist saman í komandi kosningum, bæði í Reykjanesbæ og annars staðar.
Þegar kosið var í sveitarstjórnum árið 2022 var fylgi Sjálfstæðisflokksins á landsvísu í kringum 25 prósent. Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum er fylgi flokksins núna 13,5 til 17,1 prósent sem er alla vega þriðjungi minna en fyrir fjórum árum. Fylgi flokksins í Suðurkjördæmi reyndist vera 19,6 prósent í síðustu alþingiskosningum en var 24,6 prósent í kosningunum þar á undan. Fylgið gefur ekki síður eftir í Suðurkjördæmi en í öðrum kjördæmum landsins.
Samfylkingin fékk þrjá menn kjörna í Reykjanesbæ í síðustu kosningum eins og Sjálfstæðisflokkurinn. Miðað við þróun fylgis síðan verður að ætla að Samfylkingin bæti verulega við sig og verði í lykilstöðu til að mynda starfhæfan meirihluta í Reykjanesbæ en alls ekki Sjálfstæðisflokkurinn.
Orðið á götunni er að miðað við þróun og staðreyndir hljóti það að teljast kjánaleg og óraunsæ bjartsýni hjá Vilhjálmi Árnasyni að tala eins og hann sé þegar orðinn bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Ekkert bendir til þess að staða Sjálfstæðisflokksins batni við það eitt að Margrét Sanders hverfi úr oddvitasæti flokksins fyrir Vilhjálm Árnason.
Vilhjálmur verður væntanlega að búa sig undir áframhaldandi daufa vist á Alþingi í valdalausri stjórnarandstöðu og nöldrandi málþófstilburðum.