fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Íslendingar segja frá því íslenskasta og fágætasta sem þeir eiga – „Hann er orðinn ansi lúinn“

Fókus
Laugardaginn 31. janúar 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áhugaverð umræða fer nú fram á Reddit þar sem Íslendingar uppljóstra um það sem þeir eiga i fórum sínum og kalla megi líklega rammíslenskt og sé jafnframt eitthvað sem fáir eigi líklega. Flestir nefna fágætar íslenskar bækur en einn hlutur er nefndur til sögunnar sem verður að teljast í skrautlegri kantinum.

Málshefjandi spyr:

„Átt þú eitthvað rammíslenskt sem þú telur að fáir eða enginn annar eigi? Blár Ópal? Táneglur Gísla Súrssonar? Hvað sem er.“

Flestir nefna bækur. Einn segist eiga öll sex bindin af Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri eftir Jón Árnason:

„Veit nú ekki hvort fáir eigi þær, en þær eru allavega rammíslenskar.“

Annar aðili segist einnig hafa nýlega eignast öll sex bindin og það hafi glatt hann mjög.

Enn annar segist eiga útgáfu frá 1945 af Íslenzkum þjóðháttum eftir Jónas Jónasson.

Einnig er nefnd til sögunnar íslensk uppskriftabók frá 1937 sem er sögð innihalda meðal annars uppskrift að njólasúpu.

Einn svarandi segist eiga í fórum sínum eintak af  Rauðskinnu hinni nýrri, í upprunalegri útgáfu. Það séu til 99 eintök af upprunalegu útgáfunni. Bókin var gefin út í þremur bindum fyrst árið 1971 en hún inniheldur samansafn þjóðsagna, sagnaþátta, þjóðhátta og annála.

Enn annar segist eiga Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags frá upphafi.

Hlutir

Einnig eru nefndir til sögunnar hlutir og munir svo sem lopapeysa handprjónuð úr íslenskum lopa, ensk útgáfa Útvegsspilsins og dúkar frá Alþingishátíðinni 1930. Skrautlegasta innleggið er þó líklega þetta:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína
Fókus
Fyrir 2 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short