fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fókus

Segir að Nicola Peltz fái þetta mikið í vasapening frá föður sínum á mánuði

Fókus
Miðvikudaginn 28. janúar 2026 11:30

Brooklyn Beckham og Nicola Peltz. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nicola Peltz, eiginkona Brooklyn Beckham, er sögð fá ansi ríflegan vasapening frá föður sínum í hverjum mánuði. Faðir hennar er auðkýfingurinn Nelson Peltz og er eignir hans metnar á um 1,7 milljarða Bandaríkjadala, yfir 200 milljarða króna.

Breska fjölmiðlakonan Marina Hyde sagði í hlaðvarpinu The Rest Is Entertainment að hún hafi heyrt að Nicola fái eina milljón dollara, um 120 milljónir króna, í mánaðarlega framfærslu frá föður sínum. Marina segir að Nelson hafi sagt Beckham-hjónunum þetta.

Þó að nafn Nelson Peltz sé ekki jafn þekkt og nafn Beckham-fjölskyldunnar þá eru auðæfi hans mun meiri en þeirra Davids og Victoriu Becham. Talið er að Beckham-hjónin séu metin á um 680 milljónir dollara, 82 milljarða króna.

Marina segir einnig að Beckham-hjónin hafi ekki búist við því að börnin þeirra yrðu látin skrifa undir kaupmála, en sú virðist engu að síður hafa verið raunin þegar Nicola og Brooklyn gengu í hjónaband árið 2022.

Samband Brooklyn við foreldra sína er við frostmark og skaut hann fast á foreldra sína í eftirminnilegri færslu á Instagram á dögunum.

Í fyrra voru Beckham-hjónin sögð hafa áhyggjur af því að sonur þeirra væri „fastur“ vegna meints kaupmála parsins sem og vegna búsetu hans í Los Angeles. Brooklyn og Nicola hafa búið í glæsilegri villu í Hollywood en samkvæmt fréttum er hún aðaleigandi hússins.

Nicola er sem kunnugt er leikkona en stærsta og eftirminnilegasta hlutverk hennar til þess var í þáttunum Bates Motel sem sýndir voru á árunum 2013 til 2015.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi
Fókus
Fyrir 3 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd
Fókus
Fyrir 1 viku

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist
Fókus
Fyrir 1 viku

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu