fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Wenger segir eitthvað sérstakt vera að gerast hjá United

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 26. janúar 2026 15:00

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsene Wenger segir ljóst að eitthvað sérstakt sé í gangi hjá Manchester United eftir að Michael Carrick leiddi liðið til glæsilegs 3-2 sigurs á Arsenal á Emirates í gær. Sigurinn var sá fyrsti hjá United í deild á vellinum í átta ár.

Carrick tók við liðinu til bráðabirgða eftir brottrekstur Ruben Amorim og hefur þegar haft mikil áhrif. Hann hóf tíð sína með 2-0 sigri á Manchester City og fylgdi því eftir með öðrum sigri gegn toppliði Arsenal.

„Mér finnst greinilega eitthvað vera að gerast hjá Manchester United, miðað við hvernig þeir unnu City og Arsenal,“ segir Arsenal-goðsögnin Wenger.

„Þegar Arsenal jafnaði í 2-2 bjóst maður við að heimaliðið myndi vinna, en United fann aftur kraftinn til að skora sigurmarkið. Ég verð að óska Carrick til hamingju, hann hefur skapað eitthvað.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Leikmaður Liverpool sparaði ekki stóru orðin eftir leik – Skaut harkalega á erkifjendurna

Leikmaður Liverpool sparaði ekki stóru orðin eftir leik – Skaut harkalega á erkifjendurna
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London