fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Hafna því að Real hafi sagt Trent að koma sér burt

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 24. janúar 2026 16:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Trent Alexander-Arnold hefur ekki verið beðinn um að yfirgefa Real Madrid, þrátt fyrir fréttir í spænskum fjölmiðlum þess efnis að nýr knattspyrnustjóri liðsins, Álvaro Arbeloa, hafi hvatt hann til að finna sér nýtt félag í sumar.

Enska landsliðsmaðurinn hefur átt erfitt uppdráttar hjá Real Madrid eftir að hann gekk til liðs við félagið fyrir sex mánuðum síðan þegar samningur hans við Liverpool rann út. Tími hans á Spáni hefur einkennst af meiðslum og hefur hann aðeins lagt upp eitt mark og ekki skorað í 11 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu.

Alexander-Arnold naut stuðnings fyrrverandi þjálfara, Xabi Alonso, sem lýsti honum sem frábærum leikmanni.

Spænski miðillinn El Nacional greindi þó frá því á föstudag að Alexander-Arnold ætti enga framtíð hjá félaginu undir stjórn Arbeloa.

Samkvæmt fréttunum áttu þeir Arbeloa og Alexander-Arnold hreinskilnislegt samtal fyrr í vikunni, þar sem varnarmaðurinn er enn að jafna sig af vöðvameiðslum.

Því hefur jafnframt verið haldið fram að Arbeloa hafi ráðlagt honum að yfirgefa félagið „honum til heilla“, en þeim fullyrðingum hefur verið hafnað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“
433Sport
Í gær

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Í gær

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn