fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Hæsta verðlaunafé sem sést hefur hjá konunum

Helgi Fannar Sigurðsson
Laugardaginn 24. janúar 2026 14:00

Úrslitaleikurinn fer fram á Emirates. Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

FIFA mun greiða 2,3 milljónir bandaríkjadala í verðlaunafé til þess félags sem vinnur fyrstu útgáfu Meistarabikars kvenna (e. Women’s Champions Cup), sem fer fram í Englandi í næstu viku.

Samkvæmt FIFA er þetta hæsta einstaka verðlaunafé sem hefur verið greitt í félagsliðafótbolta kvenna til þessa.

Alls verða 3,9 milljónir dala greiddar út til sex meistaraliða frá mismunandi heimsálfum. Úrslitakeppnin fer fram í London og er hugsuð sem upphitun fyrir fyrirhugað HM félagsliða sem á að hefjast árið 2028.

Evrópumeistarar Arsenal mæta ASFAR frá Marokkó í undanúrslitum, á meðan Gotham FC frá Bandaríkjunum leikur gegn Corinthians frá Brasilíu. Báðir leikirnir fara fram á miðvikudag á heimavelli Brentford. Úrslitaleikurinn fer fram á Emirates-leikvanginum 1. febrúar, þar sem einnig verður leikið um þriðja sætið.

Silfurliðið fær 1 milljón dala í verðlaunafé, taplið í undanúrslitum fá 200 þúsund hvort og lið sem féllu út fyrr í keppninni fá 100 þúsund dala hvert. FIFA segir verðlaunaféð skýrt merki um vöxt kvennaknattspyrnunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Leikmaður Liverpool sparaði ekki stóru orðin eftir leik – Skaut harkalega á erkifjendurna

Leikmaður Liverpool sparaði ekki stóru orðin eftir leik – Skaut harkalega á erkifjendurna
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London