

Mari Järsk hlaupakona og Njörður Lúðvíksson, verkefnastjóri hjá Össuri, eiga von á sínu fyrsta barni í sumar.
„Brúna að verða stóra systir í sumar,“ skrifar parið í færslu á samfélagsmiðlum. Þar birta þau myndbönd af sér að segja vinum og fjölskyldu fregnirnar auk myndar af hundinum Brúnu með sónarmyndina.
View this post on Instagram
Parið kynntist árið 2022 og hafa þau verið opin með ferlið til að eignast barn vegna óútskýrðrar ófrjósemi.