fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Vill fá svör um framtíð sína – Óttast að HM sé í hættu

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 21. janúar 2026 17:30

Mathys Tel

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fulltrúar Mathys Tel hyggjast leita skýringa hjá Tottenham í þessari viku varðandi framtíð leikmannsins hjá félaginu.

Thomas Frank, knattspyrnustjóri Spurs, viðurkenndi að franski sóknarmaðurinn væri ósáttur eftir að hafa verið skilinn útundan í Meistaradeildarhópnum þegar Dominic Solanke sneri aftur úr meiðslum.

Solanke skoraði í leiknum gegn Dortmund á þriðjudagskvöldið.

Tel hefur metnað til að komast í franska landsliðshópinn fyrir Heimsmeistaramótið, en skortur á spilatíma hjá Tottenham setur þau markmið í hættu.

Nokkur félög hafa fylgst með stöðu hans, þar á meðal Paris FC, Roma og lið í þýsku Bundesligunni.

Tottenham vilja hins vegar helst tryggja sér annan sóknarmann áður en Tel fær leyfi til að fara, hvort sem er á láni eða í varanlegum félagaskiptum. Næstu dagar gætu því ráðið miklu um framhaldið hjá unga Frakkanum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Leikmaður Liverpool sparaði ekki stóru orðin eftir leik – Skaut harkalega á erkifjendurna

Leikmaður Liverpool sparaði ekki stóru orðin eftir leik – Skaut harkalega á erkifjendurna
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London