fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Kemur félaga sínum til varnar eftir erfiða mánuði í London

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 19:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gabriel Jesus kom liðsfélaga sínum í sókninni hjá Arsenal, Viktor Gyokeres, til varnar fyrir leik kvöldsins gegn Inter í Meistaradeildinni.

Gyokeres var keyptur til Arsenal frá Sporting á mikinn pening í sumar eftir að hafa raðað inn mörkum í Portúgal. Svíinn hefur ekki beint haldið uppteknum hætti í ensku úrvalsdeildinni.

„Hann er frábær leikmaður,“ sagði Jesus, sem hefur upplifað tímana tvenna hjá Arsenal sjálfur, um Gyokeres.

„Ég hef sjálfur verið í þessari stöðu og veit hvað þetta getur verið erfitt. Leikmannahópurinn stendur þétt við bakið á honum.“

Arsenal nægir stig í leiknum á eftir til að tryggja sig áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Leikmaður Liverpool sparaði ekki stóru orðin eftir leik – Skaut harkalega á erkifjendurna

Leikmaður Liverpool sparaði ekki stóru orðin eftir leik – Skaut harkalega á erkifjendurna
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London