fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Meint hjákona David Beckham varpar sprengju í kjölfar þess að sonur hans tók foreldrana af lífi í yfirlýsingu

433
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rebecca Loos, fyrrverandi aðstoðarkona David Beckham, hefur brugðist við opinberri yfirlýsingu Brooklyn Beckham í kjölfar deilunnar innan Beckham-fjölskyldunnar.

Brooklyn, sem er 26 ára, rauf þögnina í gær með ítarlegri yfirlýsingu á samfélagsmiðlum þar sem hann sakaði foreldra sína, David og Victoria Beckham, um að hafa stjórnað lífi sínu og ímynd í fjölmiðlum frá unga aldri.

Meira
Stormurinn eykst í kringum Beckham fjölskylduna: Sendir frá langa yfirlýsingu og tekur foreldra sína af lífi

Í kjölfarið lýsti Loos stuðningi við Brooklyn. Hún skrifaði athugasemd þar sem hún sagðist ánægð með að hann standi loksins upp fyrir sjálfum sér og bætti við að hún hefði fundið til með eiginkonu hans og þekkti vel hvernig fjölskyldan gæti verið.

Loos vakti heimsathygli árið 2004 þegar hún hélt því fram að hún hefði átt í ástarsambandi við David Beckham, ásökunum sem hann hefur ávallt harðlega neitað.

Viðbrögð Loos hafa vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum og hella enn olíu á eldinn í einni umtöluðustu fjölskyldudeilu heims.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Leikmaður Liverpool sparaði ekki stóru orðin eftir leik – Skaut harkalega á erkifjendurna

Leikmaður Liverpool sparaði ekki stóru orðin eftir leik – Skaut harkalega á erkifjendurna
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London