fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Heldur starfinu í bili þrátt fyrir ummælin

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 19. janúar 2026 09:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Crystal Palace hefur ákveðið að reka ekki knattspyrnustjórann Oliver Glasner þrátt fyrir harða gagnrýni hans á stjórn félagsins eftir 2-1 tap gegn Sunderland.

Glasner sakaði stjórn Palace um að yfirgefa sig og leikmannahópinn eftir að fyrirliðinn Marc Guehi var seldur til Manchester City aðeins 24 klukkustundum fyrir leikinn.

Ummæli Glasner í kjölfarið komu framkvæmdastjóra félagsins, Steve Parish, í opna skjöldu og ollu mikilli óánægju. Þrátt fyrir það vill Parish að Glasner klári samning sinn, sem rennur út eftir tímabilið, eftir samtal Matt Hobbs, yfirmanns knattspyrnumála, við Austurríkismanninn.

Palace er nú án sigurs í tíu leikjum í öllum keppnum. Aðeins eru um átta mánuðir frá því Glasner gerði liðið óvænt að bikarmeistara.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Leikmaður Liverpool sparaði ekki stóru orðin eftir leik – Skaut harkalega á erkifjendurna

Leikmaður Liverpool sparaði ekki stóru orðin eftir leik – Skaut harkalega á erkifjendurna
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London