fbpx
Sunnudagur 23.nóvember 2025
Fókus

Ragnhildur segir að þetta sé ekki eina leiðin til að borða hollt – Prófaðu þessa nýju nálgun í staðinn

Fókus
Sunnudaginn 23. nóvember 2025 17:30

Ragga Nagli. Mynd/Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli, segir að það sé alls ekki ein leið til að borða hollt. Hún útskýrir málið í nýjum pistli á Facebook, en pistlar hennar um heilsu á mannamáli hafa notið mikilla vinsælda um árabil.

Ragnhildur er sálfræðingur með áherslu á heilsusálfræði og lærður einkaþjálfari.

„Alltof margir sjá að eina leiðin til að borða hollt sé að skera allskonar út úr mataræðinu. Sleppa hveiti, sykri, smjöri. Forðast kolvetni eins og hnerrandi mann. Brauð verður Satans, mjólk úr belju víkur fyrir mjólk úr plöntu,“ segir Ragnhildur.

„Allt þetta veldur skorthugsun sem á einhverjum tímapunkti leiðir til að FOKKITT mætir í öllu sínu veldi og áður en þú veist af liggur kexpakkinn örendur á gólfinu.“

„Hvað með að prófa nýja nálgun?“ spyr hún.

„Hvað með í staðinn fyrir að naga sundur kinnarnar í viljastyrk að sleppa allskonar að bæta frekar við góðum valkostum og ýta þannig ósjálfrátt út því sem þú vilt gera minna af?

Því það er hreinlega ekki pláss fyrir ropvatn og kruðerí þegar við erum vel nærð af prótíni, hæglosandi kolvetnum, trefjum og góðri fitu og þú steingleymir skyndilega skápaskröltinu á kvöldin.  Þegar við borðum nóg af kolvetnum er blóðsykurinn jafn og minni löngun í sykur og sætmeti.“

Ragnhildur tekur dæmi um þessa nýju nálgun:

„Bættu við grófu korni, haframjöli, kartöflum, rótargrænmeti og hrísgrjónum í máltíðirnar.

Þegar við byrjum daginn á 25-30 g af prótíni keyrum við sedduna uppúr öllu valdi og setur tóninn fyrir daginn.

Prófaðu að dúndra inn NOW Foods Iceland prótíndufti í hafragrautinn, skyri í múslíið eða skrambla egg á pönnu á gróft brauð.

Þegar við fáum 7-9 tíma svefn eru svengdar og sedduhormónin hamingjusöm og í jafnvægi. Svefn heldur jafnvægi á blóðsykri, og dregur úr pervertískum löngunum í súkkulaði, snakk og kex og skjóta orku úr pakka, plasti eða álpappír.

Láttu símann minna þig á að hunskast fyrr í bælið

Ef þú lyftir lóðum eykst sjálfstraustið uppúr öllu valdi, vöðvamassinn eykst og grunnbrennslan dúndrast upp og blóðsykurinn jafnari.

Meiri trefjar þýðir meiri mettun og minna pláss fyrir Dórítós.

Skutlaðu Psyllium husk í hafragrautinn og auktu við grófa kornið.

Ef þú ferð út að labba þá eyðirðu minni tíma fyrir framan imbann.

Farðu í göngutúr eftir kvöldmat, þá sefurðu líka betur.

Ef þú hittir vinina og hlærð dátt þá losarðu serótónín og oxýtócin sem stuðlar að meiri vellíðan og hamingju.

Reyndu að gera eitthvað félagstengt 2-3x í viku.“

Lestu pistilinn í heild sinni hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Allt dramað í Miss Universe-keppninni rakið – Voru úrslitin ákveðin fyrirfram?

Allt dramað í Miss Universe-keppninni rakið – Voru úrslitin ákveðin fyrirfram?
Fókus
Fyrir 2 dögum

Lestrarhátíð fyrir börn og fjölskyldur

Lestrarhátíð fyrir börn og fjölskyldur
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sofnaðu á 2 mínútum – Aðferðin sem hermenn nota

Sofnaðu á 2 mínútum – Aðferðin sem hermenn nota
Fókus
Fyrir 3 dögum

Katrín braut konunglegar siðareglur – Ástæðan sorgleg og hjartnæm

Katrín braut konunglegar siðareglur – Ástæðan sorgleg og hjartnæm
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ógnvekjandi myndband sýnir hvað getur beðið kvenna sem ferðast einar

Ógnvekjandi myndband sýnir hvað getur beðið kvenna sem ferðast einar
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta áttu aldrei að segja við þá sem syrgja – Frásögn konu sem missti eiginmann og son með fimm daga millibili

Þetta áttu aldrei að segja við þá sem syrgja – Frásögn konu sem missti eiginmann og son með fimm daga millibili
Fókus
Fyrir 4 dögum

The Simpsons drap eina af elstu persónum þáttanna

The Simpsons drap eina af elstu persónum þáttanna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Stóru spurningunni svarað: Á að skola sveppi fyrir eldun?

Stóru spurningunni svarað: Á að skola sveppi fyrir eldun?