

Manchester United hefur samkvæmt enskum miðlum áhuga á að reyna að fá Federico Valverde frá Real Madrid í sumar. Úrúgvæski miðjumaðurinn er sagður vera á lista félagsins yfir mögulegar styrkingar fyrir næsta tímabil.
Valverde, sem er 27 ára gamall, hefur verið lykilmaður hjá Real Madrid undanfarin ár og þykir einn fjölhæfasti miðjumaður Evrópu. Hann getur leikið bæði á miðjunni og úti á hægri kantinum og er þekktur fyrir mikla vinnslu, hraða og kraftmikinn leik.
Manchester United vill styrkja miðsvæðið í sumar og hefur verið orðað við nokkra stóra leikmenn síðustu vikur. Félagið er talið ætla að fjárfesta verulega í nýjum leikmönnum eftir sveiflukennt tímabil.
Ekki er þó talið líklegt að Real Madrid vilji selja Valverde nema mjög hátt tilboð berist. Miðjumaðurinn er afar vinsæll meðal stuðningsmanna félagsins og hefur verið fastamaður í liði spænska stórveldisins,