fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

U-beygja og hann tekur sennilega aftur við fyrir HM

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 13. maí 2026 16:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dick Advocaat er að öllum líkindum að taka aftur við landsliði Kúrasaó aðeins þremur mánuðum eftir að hann hætti með liðið.

Þessi 78 ára gamli Hollendingur sagði starfi sínu lausu í febrúar til að sinna veikri dóttur sinni, eftir að hafa tryggt Kúrasaó sæti á HM 2026. Hann mæltist þá til þess að landi hans Fred Rutten tæki við liðinu.

Rutten entist þó aðeins í 77 daga. Kúrasaó tapaði 2-0 fyrir Kína og síðan 5-1 gegn Ástralíu í vináttuleikjum í mars, en í kjölfarið fóru sögur af stað um ósætti innan hópsins og að menn vildu að Advocaat tæki við aftur.

Ráðning Advocaat verður væntanlega staðfest á næstu dögum. Ef hann stýrir liðinu á HM verður hann elsti landsliðsþjálfari í sögu heimsmeistaramótsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt