fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

Myrti barnsmóður sína á hrottalegan hátt og gaf hundum líkamsleifarnar – Fékk svo að ganga frjáls á ný

433
Þriðjudaginn 12. maí 2026 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Búið er að stinga brasilíska markverðinum Bruno Fernandes aftur í steininn eftir tvo mánuði á flótta.

Bruno var árið 2013 sakfelldur fyrir aðild að morðinu á Elizu Samudio, fyrrverandi kærustu sinni og móður sonar hans. Saksóknarar töldu að hún hefði verið kyrkt, lík hennar bútað niður og hluti þess gefinn hundum.

Bruno átti konu þegar Eliza varð ólétt eftir hann og er talið að þess vegna hafi hann framið verknaðinn, til að hylma yfir framhjáhaldinu og til að sleppa við að borga með barninu.

Lík Elizu fannst aldrei. Bruno neitaði sök en var dæmdur í yfir 20 ára fangelsi en var árið 2023 látinn laus á skilorði. Það skilorð braut hann svo með því að ferðast til að spila fótboltaleik en hefur hann verið í felum síðustu mánuði. Hann er hins vegar fundinn nú.

Það vakti mikla reiði þegar Bruno var látinn laus upphaflega, en hann sneri aftur á knattspyrnuvöllinn á þessu ári. Ekki bætti það úr skák þegar hann hélt því fram að hann ætlaði sér að demba sér út í stjórnmál eftir að knattspyrnuferlinum lýkur.

Hann gekk nýverið til liðs við Vasco de Rio Branco og gæti leikið gegn Velo Clube í bikarkeppninni. Endurkoma hans hefur mætt gagnrýni frá kvenréttindasamtökum og stórum hluta almennings sem telur óviðeigandi að dæmdur morðingi fái að koma í sviðsljósið á ný.

Þá hefur Bruno lýst yfir áformum um að fara í stjórnmál að ferlinum loknum, sem hefur enn frekar vakið reiði fólks.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt