
Jose Mourinho er að taka aftur við Real Madrid eftir að Florentino Perez var endurkjörinn forseti félagsins til ársins 2030.
Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning við Real Madrid í síðasta mánuði en samningurinn var háður því að Perez héldi forsetastólnum.
Perez vann kosningarnar með 65 prósent atkvæða og staðfesti í kjölfarið að Mourinho yrði næsti stjóri félagsins.

„Við erum stolt af því að fá aftur einn besta þjálfara heims, sannkallaðan Madridista eins og Jose Mourinho,“ sagði Perez.
Mourinho stýrði áður Real Madrid frá 2010 til 2013 og vann þá meðal annars spænsku deildina og bikarinn.
Portúgalinn kemur frá Benfica, þar sem hann endaði í þriðja sæti portúgölsku deildarinnar á síðustu leiktíð.
Real Madrid vann engan titil á nýliðinni leiktíð. Mourinho tekur við af Alvaro Arbeloa.