

Gary Lineker segir að hann sakni þess ekki að starfa hjá BBC og njóti þess að þurfa ekki lengur að „ganga á eggjaskurn“ í starfi sínu.
Það er rúmt ár síðan Lineker lét af störfum hjá breska ríkisútvarpinu eftir 26 ára starf. Hann var andlit þátta á borð við Match of the Day og stýrði einnig umfjöllun BBC frá stórmótum landsliða.
Brottför hans kom í kjölfar umdeildrar færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann deildi efni um síonisma sem vakti mikla gagnrýni og leiddi til ásakana um gyðingahatur. Lineker baðst síðar afsökunar og sagði að afsögn sín hefði verið ábyrgasta leiðin til að leysa málið.
Nú segist hinn 65 ára gamli sjónvarpsmaður vera ánægður með lífið utan BBC.
„Ég elska BBC og mun alltaf gera það. Ég ber mikla virðingu fyrir stofnuninni og hún framleiðir frábært sjónvarp,“ sagði Lineker í nýlegu viðtali.
Hann viðurkennir þó að hann njóti þess að vera laus við þær hömlur sem fylgdu starfinu.
„Ég nýt þess að þurfa ekki að fara varlega í hverju einasta skrefi. Allt gengur mjög vel og ég sakna starfsins alls ekki,“ sagði Lineker.